Þrefalda framleiðslu á íslensku eldsneyti Svavar Hávarðsson skrifar 15. október 2013 07:00 Verksmiðjan breytir koltvísýringsútblæstri frá virkjun HS Orku í metanól, sem fljótandi eldsneyti fyrir bíla og önnur farartæki. mynd/CRI
Carbon Recycling International (CRI) vinnur nú að stækkun verksmiðju sinnar við jarðvarmavirkjun HS Orku við Svartsengi og þrefaldar framleiðslugetu sína á metanóli fyrir mitt næsta ár. Í bandaríska stórblaðinu Wall Street Journal er fjallað um kosti metanóls sem orkugjafa í samhengi við framtíðarskuldbindingar Bandaríkjanna um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda. Þar er CRI sérstaklega nefnt sem dæmi um hvað sé mögulegt og æskilegt, enda leiðandi fyrirtæki í heiminum á þessu sviði. Ólafur E. Jóhannsson, upplýsingafulltrúi CRI, segir að framkvæmdir standi nú yfir við verksmiðjuna í Svartsengi. Nú séu framleiddar 1,7 milljónir lítra á ári en um mitt næsta ár verður framleiðslan 5,1 milljón lítra. Fjallað er um tæknina sem CRI notar til að framleiða eldsneyti úr koltvísýringi í stórblaðinu Wall Street Journal á fimmtudag. Þar halda á penna George Olah, nóbelsverðlaunahafi í efnafræði, og Chris Cox, fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og stjórnarformaður verðbréfa- og kaupþingsnefndar Bandaríkjanna (SEC). Olah hefur sinnt ráðgjafastörfum fyrir CRI. Tilefni skrifanna er stefnumörkun bandarískra stjórnvalda um hvernig má draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Í greininni er útskýrt hvernig framleiðendur í Bandaríkjunum votta bíla til notkunar með blöndu bensíns og etanóls, sem unnið er úr korni. Etanól hafi rutt öllum öðrum íblöndunarefnum í bensín úr vegi á grundvelli þrýstings frá kornbændum. Þingmenn geti brugðist við með því að samþykkja fyrirliggjandi frumvarp sem yrði þess valdandi að t.d. metanól, jarðgas og lífdísill myndu keppa á sama grunni og etanól án landbúnaðarstyrkja. Þeir Olah og Cox komast að þeirri niðurstöðu að CRI hafi þegar sýnt fram á tæknilega og viðskiptalega hagkvæmni þess að fanga útblásturinn og breyta honum í eldsneyti og fyrirtækið sé í forystu á þessu sviði í heiminum. Þeir benda á að metanólblandað bensín sé notað í milljónir bíla í Evrópu og BNA séu langt á eftir í þeirri þróun vegna fyrrnefnds lagaumhverfis. Carbon Recycling International er ásamt níu öðrum tilnefnt til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandsráðs. Tilkynnt verður hver hlýtur verðlaunin við hátíðlega athöfn í Ósló 30. október næstkomandi. CRI og Orkuveita Reykjavíkur hafa rætt hugmyndir um að koma upp metanólverksmiðju við Hellisheiðarvirkjun, auk verksmiðju sem framleiðir brennisteinssýru úr brennisteinsvetnismengun frá orkuverinu. Mengun brennisteinsvetnis er vandamál sem OR vinnur að því að leysa. Eins hefur CRI á teikniborðinu að byggja tífalt stærri verksmiðju á Reykjanesi en nú er starfrækt við Svartsengi. Markaður fyrir endurnýjanlegt fljótandi eldsneyti í Evrópu er talinn munu tvöfaldast fyrir árið 2020. Evrópusambandið stefnir að því að setja hámark á notkun lífeldsneytis sem unnið er úr landbúnaðarafurðum frá og með næsta ári.
Mest lesið Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Viðskipti erlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Viðskipti erlent Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Viðskipti innlent Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Fleiri fréttir Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Sjá meira