Viðskipti innlent

Ríkisaðstoð við sparisjóði samþykkt af ESA

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Róbert
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, samþykkti fyrr í dag ríkisaðstoð vegna endurreisnar tveggja íslenskra sparisjóða. Um er að ræða Sparisjóð Vestmannaeyja og Sparisjóð Norðfjarðar og aðstoðin var veitt og samþykkt tímabundið í júní 2010 og apríl 2011, sem hluti af aðstoðaráætlun til björgunar fimm smærri sparisjóða.

„Mér þykir miður að það hafi tekið mun lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir að ljúka gerð trúverðugra áætlana um endurskipulagningu sparisjóðanna. Íslensk stjórnvöld verða nú að taka endanlegar ákvarðanir um framtíð hinna sparisjóðanna þriggja, en endurreisn þeirra hefur enn ekki verið samþykkt af ESA. Slíkar ákvarðanir gætu annað hvort falið í sér framlagningu áætlana sem sýna fram á rekstrarhæfi sparisjóðanna til lengri tíma eða að sjóðirnir verði settir í slitameðferð.” segir Oda Helen Sletnes, forseti Eftirlitsstofnunar EFTA, í tilkynningu á vef EFTA.

Heildareignir Sparisjóðs Vestmannaeyja nam 13 milljörðum króna í árslok 2012 og heildareignir Sparisjóðs Norðfjarðar nam 5,2 milljörðum, en báðir sparisjóðirnir sinna almennri bankaþjónustu, auk þess að sinna annarri tengdri fjármálaþjónustu.

„Efnahagshrunið hafði neikvæð áhrif á afkomu íslenskra sparisjóða sem í kjölfarið áttu í miklum rekstrarvanda. Flestir sparisjóðir áttu hlut í stóru viðskiptabönkunum, þar á meðal Sparisjóðabanka Íslands hf., sem stofnaður var af sparisjóðunum og gegndi lykilþjónustuhlutverki fyrir þá.“

„Í kjölfar hruns viðskiptabankanna þriggja, í október 2008, ákvað Fjármálaeftirlitið í mars 2009 að taka yfir vald hluthafafundar í Sparisjóða-bankanum og mælti fyrir um ráðstöfun eigna og skulda bankans. Var Seðlabanki Íslands gerður ábyrgur fyrir innstæðum sparisjóðanna hjá Sparisjóðabankanum. Á móti tók Seðlabankinn yfir kröfur Sparisjóðabankans á hendur sparisjóðunum og varð þannig helsti lánveitandi þeirra.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×