Hinn hagsýni leigir nema hann taki sportið alla leið Þorbjörn Þórðarson skrifar 8. desember 2013 23:44
Skíðamenn búast við góðri verðtíð í vetur að sögn formanns Skíðasambands Íslands. Það er ekki tekið út með sældinni að leggjast í kaup á nýjum búnaði en hann endist í tíu ár að meðaltali og kostnaðurinn jafnast út. Ef vetur konungur verður skíðamönnum hliðhollur er ærin ástæða til að draga fram skíðin í vetur. Á gönguskíðum eru átökin meiri en líkamlegt atgervi gönguskíðamanna er vel þekkt. Þeir sem vilja komast hratt og njóta þess að láta adrenalínið jafnast út með heitt kakó uppi í skála eftir á fara á svigskíði. Margir eiga frábærar minningar úr KR-skálanum í Skálafelli eða í stólalyftunni í Bláfjöllum. Duttlungar veðurguðanna hafa hins vegar gert það að verkum að margir komast ekki eins oft á skíði og þeir kjósa, en skíðamenn eru bjartsýnir fyrir veturinn. Á meðaljóninn, sem fer 5 sinnum í skíði yfir veturinn að leigja eða kaupa skíðabúnað? Stofnkostnaður nýs búnaðar er verulegur, en hjá þeim sem stunda íþróttina af ástríðu er þetta fljótt að borga sig upp. Fréttastofan fór og athugaði með stofnkostnað nýs búnaðar í milliverðflokki. Vandaðan búnað sem á að endast í tíu ár. Sjá má heimsókn í sportvöruverslun í meðfylgjandi myndskeiði.Stofnkostnaður - milliverð á vönduðum búnaði Skíði með bindingum 84.990 kr. Skíðaskór 39.900 kr. Hjálmur 11.900 kr. Stafir. 4.900 kr.Samtals: 141.690 kr. Ef menn vilja sleppa hjálmi þá eru þetta tæpar 130 þúsund krónur. Tekið skal fram að hér er um að ræða búnað frá einu af toppmerkjunum í heiminum. Ef búnaðurinn endist í tíu ár er þetta kostnaður upp á 13.000 kr. á ári. Hér er miðað við stofnkostnað fyrir fullorðinn einstakling.Hvað á meðaljóninn að fara oft á skíði yfir veturinn til að það borgi sig að fjárfesta í nýjum búnaði? „Ég myndi segja þrisvar sinnum, eitthvað svoleiðis. Ef hann fer oftar en það fer það að borga sig. Fljótt að koma. Fyrir börn eru pakkarnir frá þrjátíu þúsund krónum,“ segir Örn Hjálmarsson, verslunarstjóri og skíðaáhugamaður. Miðað við leigu á búnaði, þ.e skíðum og skóm, í kringum 5.000 kr. fyrir daginn er þetta ekki fjarri lagi. Hvað erum við að tala um í endingartíma á góðum búnaði? „Það er algengt að fólk skipti á tíu ára fresti um búnað, tíu til fimmtán ára fresti. Þetta er auðvitað fjárfesting til margra ára og fólk fer auðvitað í ferðir. Þetta býður upp á að maður fari til Akureyrar að skíða. Fólk á höfuðborgarsvæðinu er farið að fara mikið þangað, í skíðabæinn,“ segir Örn.Aukning hjá fjölskyldufólki að sækja í sportið Einar Þór Bjarnason, formaður Skíðasambands Íslands, er bjartsýnn fyrir veturinn.Eiga skíðamenn góða vertíð í vændum? „Við ætlum rétt að vona það. Það bendir allt til þess eins og veðurguðirnir hafa leikið okkur að það safnist snjór í fjöllin og ég heyri og finn á fólki að það er spennt að fara. Mér heyrist líka að það sé talsverð aukning hjá fjölskyldufólki að sækja í sportið,“ segir Einar Þór.Nú hafa skíðin átt undir högg að sækja gagnvart snjóbrettunum, sérstaklega hjá unglingum, en það er stöðug nýliðun meðal iðkenda í skíðaíþróttinni? „Við erum að sjá sérstaklega núna í ár mikla nýliðun hjá félögunum úti um allt land. Svo er annað sem er að gerast að aukning í brettunum hefur kannski aðeins dalað og við erum að sjá aukningu í free-style skíðum, leikskíðum. Eins er vöxtur í fjallaskíðum og göngumennsku.“
Mest lesið Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira