Sannleikurinn: Að dreifa svínshræjum á lóð múslima svipað og skrifa greinar gegn kirkjunni í Morgunblaðið Andri Þór Sturluson skrifar 29. nóvember 2013 21:44 Hvað er skepna? Svínið vinstra megin eða afskorna höfuðið til hægri?
Aumingi með minnimáttarkennd sem orðið hefur undir í lífinu og kennir öðrum um, játaði að vera nógu bilaður í hausnum til að dreifa svínshausum og blóði á lóð Félags múslima í fyrradag. Maðurinn, Óskar Bjarnason, er týpískt eintak af manni sem hatar múslima. Fáfróður, illa gefinn og kann ekki reglurnar um hvenær eigi að setja stóra stafi og punkta eins og eftirfarandi Facebook status sem hann birti á síðu sinni eftir viðtal við Vísi gefur til kynna: „æja þessir aular á stöð 2 eru bara aular það kom ekki neitt fram sem fór á milli okkar á kaffi húsinu gék bauð uppá pönnukökur og kaffi og fjekk bara morsvip til baka og blátt nei mjög kustis étta fólk og ekki fjekk ég skilaboð frá þessari snobb hænu um að löggan ætli að talavið mig bara aular ha ha ha“ Lögregla segist ætla rannsaka málið sem hatursglæp og eru viðurlög við slíku fangelsi í allt að 2 ár. Erfitt getur þó reynst að fá menn dæmda fyrir slíkt þar sem þeir geta alltaf borið því við að þeir séu heilaskaddaðir. Lögreglan virðist líka ekki taka málið alvarlega. Fréttamennirnir sem voru það óheppnir að þurfa taka viðtal við Óskar létu lögreglufulltrúa hafa símanúmer og játningu hans fyrr í dag en lögreglufulltrúinn kvaðst ekki hafa tíma fyrir málið að svo stöddu þar sem brjálað væri að gera í kynferðislegri áreitni og einelti hjá lögreglunni. Sagði lögreglufulltrúinn þó að hann teldi glæpinn lítinn og saklausan og líkti honum við andstöðu Vantrúarmanna við Þjóðkirkjuna sem skrifa greinar og spila bingó yfir kakóbolla á föstudaginn langa. Samlíking sem eru svo ótrúlega fávís að maður veltir fyrir sér hvort Óskar múslimahatari yrði ekki bara góður lögreglumaður.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu þar sem allir eru jafn ruglaðir.
Harmageddon Mest lesið Kontinuum á toppi Pepsi Max lista X977 Harmageddon Sannleikurinn: Íþróttamaður ársins vann sinn fyrsta titil í ár þegar hann var valinn íþróttamaður ársins Harmageddon Sannleikurinn: Erill hjá lögreglu vegna Furby leikfanga Harmageddon Páll Óskar: Fimm bestu HAM-lögin Harmageddon „Endaþarmsmök stuðla að jafnrétti kynja“ Harmageddon Bill Burr vill lífstíðarfangelsi fyrir bankamenn Harmageddon Herra Ísland Harmageddon Feitlaginn bandarískur umboðsmaður vildi fá hana í rúmið Harmageddon Sannleikurinn: Um vegi, hraun og auðmenn Harmageddon Segir Þjóðkirkju stuðla að heilaskaða Íslendinga Harmageddon
Sannleikurinn: Íþróttamaður ársins vann sinn fyrsta titil í ár þegar hann var valinn íþróttamaður ársins Harmageddon
Sannleikurinn: Íþróttamaður ársins vann sinn fyrsta titil í ár þegar hann var valinn íþróttamaður ársins Harmageddon