Óbreyttir stýrivextir 6. nóvember 2013 09:04 Í tilkynningu Seðlabankans vegna ákvörðunarinnar segir að horfur séu á að hagvöxtur í ár verði nokkru meiri en bankinn spáði í ágúst, eða 2,3 prósent.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að hún hafi ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 6 prósentum. Í tilkynningu Seðlabankans vegna ákvörðunarinnar segir að horfur séu á að hagvöxtur í ár verði nokkru meiri en bankinn spáði í ágúst, eða 2,3 prósent. „Batinn á vinnumarkaði heldur áfram af auknum krafti og hefur heildarvinnustundum ekki fjölgað jafn mikið á einu ári frá árinu 2007. Eftir að hafa aukist nokkuð á þriðja fjórðungi ársins hefur verðbólga minnkað á ný. Samkvæmt spá bankans eru horfur á hægfara hjöðnun verðbólgu á komandi misserum. Hún verður minni á næstunni en áður var reiknað með en verðbólguhorfur til ársins 2016 eru í stórum dráttum svipaðar og áður var spáð. Gert er ráð fyrir að verðbólga hnígi að markmiði undir lok árs 2015. Það er hægfara hjöðnun og sem fyrr næm fyrir þróun gengis og launa á næstu misserum. Viðskiptakjör Íslands hafa versnað á undanförnum misserum og hefur það rýrt viðskiptaafgang og sett þrýsting á gengi krónunnar. Litið fram á við er óvissa um áhrif þungrar greiðslubyrðar erlendra lána, uppgjöra búa fallinna banka og losunar fjármagnshafta á gengisþróun. Nú um stundir skiptir þó óvissa vegna komandi kjarasamninga mestu máli. Í spá Seðlabankans er sem fyrr gert ráð fyrir launahækkunum í kjarasamningum sem eru umfram það sem samrýmist verðbólgumarkmiðinu og er þá byggt á sögulegri reynslu. Verði launahækkanir í samræmi við spána er líklegt að nafnvextir bankans muni að óbreyttu hækka í framhaldinu, sérstaklega ef slakinn í þjóðarbúskapnum heldur áfram að minnka. Launahækkanir umfram það auka líkur á vaxtahækkunum enn frekar. Verði launahækkanir hins vegar í samræmi við verðbólgumarkmið mun verðbólga að öðru óbreyttu hjaðna hraðar en gert er ráð fyrir í spánni og vextir verða lægri en ella. Stefnan í ríkisfjármálum mun einnig hafa áhrif á aðhaldsstig peningastefnunnar. Því er mikilvægt að eftir meðferð Alþingis á frumvarpi til fjárlaga verði aðhald í ríkisfjármálum að minnsta kosti jafn mikið og boðað er í frumvarpinu. Laust taumhald peningastefnunnar hefur á undanförnum misserum stutt við efnahagsbatann. Áfram gildir að eftir því sem slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti aðlögunin á sér stað með breytingum nafnvaxta Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar, sem ræðst að miklu leyti af þróun launa og gengishreyfingum krónunnar," segir í tilkynningu Seðlabankans.
Mest lesið Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Samstarf Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Góð ráð við slæmum þynnkudegi í vinnunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Sjá meira