Viðskipti innlent

Vitni neita að svara spurningum

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vilhjálmur Bjarnason og Björgólfur Thor Björgólfsson.
Vilhjálmur Bjarnason og Björgólfur Thor Björgólfsson.
Vitnaleiðslumáli Vilhjálms Bjarnasonar fjárfestis og þingmanns Sjálfstæðisflokksins gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni, athafnamanni, var frestað í dag. RÚV greinir frá þessu.

Fyrsta vitni málsins bar fyrir sig þagnarskyldu og neitaði að svara spurningum.

Vignir Rafn Gíslaon, forstöðumaður PwC á Akureyri byrjaði á að lesa upp yfirlýsingu fyrir dóminn. Sagðist hann vera löggiltur endurskoðandi og einn eigenda PwC og að sér væri hvorki skylt né heimilt að svara spurningum um Landsbankann eða viðskiptavini hans vegna þagnarskyldu. Að auki hefði slitastjórn Landsbankans höfðað mál gegn PwC vegna vinnu fyrirtækisins fyrir bankann á árunum fyrir hrun. Þá héldi stefnandi málsins, Vilhjálmur, því fram að lögbrot hefðu verið framin, því mætti hann skorast undan því að svara spurningum sem sneru að hugsanlegum lögbrotum.

Lögmaður Vilhjálms spurði Vigni tveggja spurninga en hann neitaði að svara. Að svo búnu bað lögmaðurinn dómara að fresta vitnaleiðslunni og úrskurða hvort vitninu bæri að svara spurningum. Lögmaður Björgólfs tók undir beiðnina um frestun. Var því gert hlé á réttarhaldinu meðan dómari og lögmenn ræddu hvernig framhald málsins skyldi verða. Flest vitni málsins hafa neitað að sfvara efnislegum spurningum og borið við þagnar- og trúnaðarskyldu. Sum þeirra hafa bent á að að þau geti átt á hættuað fá 20 milljóna króna sekt ef þau segja eitthvað sem þeim er óheimilt, án þess að dómari leysi þá undan þagnarskyldu.

Í réttarhaldinu hefur verið farið yfir hvernig Landsbankinn mat tengsl Björgólfs Thors við bankann og komist að þeirri niðurstöðu að hann væri ekki tengdur aðili. Einnig hefur verið talað um tilfærslur á eignarhaldi í Landsbankanum. Rætt var um kaup félagsins Hersis á ákveðnum hlut Samsonar í Landsbankanum. Kaupin gengu til baka þegar fjármögnun fékkst ekki og eru viðskiptin skráð á núlli, bæði þegar Samson seldi hlutinn og fékk hann aftur. Þetta vitnaleiðslumál snýst meðal annars um að upplýsa hvort þessi viðskipti og aðrir þættir hafi verið notaðir til að fela eignarhald Björgólfs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×