Viðskipti innlent

Ryanair vildi fljúga til Íslands

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Erfitt aðflug á Akureyrarflugvelli varð til þess að sá kostur var ekki talinn álitlegur hjá Ryanair.
Erfitt aðflug á Akureyrarflugvelli varð til þess að sá kostur var ekki talinn álitlegur hjá Ryanair. Mynd/Nordicphotos/AFP
Lággjaldaflugfélagið Ryanair kannaði möguleika á flugi til Íslands í sumar. Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.

Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia, segir að nokkur erlend flugfélög hafi skoðað áætlunarflug hingað undanfarið. Þar á meðal forsvarsmenn Ryanair. Hún segir þá hafa athugað flug til Keflavíkur og Akureyrar en kostnaðurinn í Keflavík hafi staðið í þeim. Elín bendir á að Ryanair sé vant því að fá mikinn stuðning frá flugvöllum og ferðamálayfirvöldum en hvorki Isavia né íslensk ferðamálayfirvöld hafa getað boðið slíkt.

Erfitt aðflug á Akureyrarflugvelli varð hins vegar til þess að sá kostur var ekki talinn álitlegur hjá stjórnendum Ryanair.

Ryanair er eitt stærsta flugfélag Evrópu og flytur árlega um áttatíu milljón farþega. Í flota félagsins eru rúmlega þrjú hundruð Boeing flugvélar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×