RARIK í umfangsmikið jarðavarmaverkefni í Tyrklandi 24. október 2013 15:46 Úr höfuðstöðvum Zorlu í Istanbúl í júní sl. þegar búið er að ganga frá viljayfirlýsingu og samningaviðræður hafnar. Mynd/RARIK
RARIK Orkuþróun (RED) hefur ásamt EFLU verkfræðistofu gert samning við tyrknesta orkufyrirtækðið Zorlu Enerji AS um virkjun jarðvarma við fjallið Nemrut í Austur-Tyrklandi. Zorlu er öflugt orkufyrirtæki með umfangsmikla starfsemi. Fyrirtækið á meðal annars og rekur stærstu jarðvarmavirkjun Tyrklands sem nýverið var stækkuð í 95 MWe. Undanfarin ár hefur RARIK Turkison Enerji (RTE), félag í eigu EFLU og RED, unnið við rannsóknir á jarðhitasvæðum í Tyrklandi sem hafa staðfest að verulegar líkur eru á að unnt sé að nýta jarðvarma til orkuöflunar við Nemrut og byggja upp hitaveitu. Aðkoma Zorlu að málinu sem leiðandi aðila styrkir verkefnið og tryggir áframhaldandi rannsóknir og framkvæmdir á svæðinu. Nýstofnað fyrirtæki, Nemrut Jeotermal Elektrik Üretimi AS (Nemrut Jeotermal), í eigu Zorlu og RTE mun annast frekari rannsóknir á svæðinu og síðan boranir vegna jarðvarmavirkjunar sem ætlað er að framleiða allt að 100-150 MWe af rafmagni og leggja til heitt vatn fyrir hitaveitu. Heimamenn hafa miklar væntingar til verkefnisins og ekki síst þekkingar Íslendinga á fjölbreyttri nýtingu á jarðhita. Nemrut Jeotermal stefnir að því að ráðast í virkjunarframkvæmdir og gerð hitaveitu á svæðinu. Steinar Friðgeirsson, framkvæmdastjóri RED, segir að framkvæmdirnar í Tyrklandi feli meðal annars í sér útflutning á sérhæfðri þekkingu Íslendinga á sviði orkumála og nýtingu umhverfisvænna orkulinda. Verkefnið skapar störf fyrir starfsmenn EFLU og RARIK og hugsanlega fleiri íslenska sérfræðinga í Tyrklandi en fyrirtækin tvö verða ráðgjafar við jarðhitaverkefnið og samninga því tengdu. J. Rúnar Magnússon, deildarstjóri jarðvarma og hitaveitnahjá EFLU, segir að nýting jarðvarmans við Nemrut hafi jákvæð áhrif á umhverfið og bæti lífsgæði í nálægum byggðum og dragi úr notkun á lífrænu eldsneyti. „Ráðgjafarsamningur EFLU og RED við Zorlu styrkir aðkomu íslenskrar þekkingar við nýtingu jarðvarmans í Tyrklandi sem er mikilvægur markaður á þessu sviði til framtíðar,“ segir Rúnar.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent