Air Canada refsar Edmonton flugvelli vegna Icelandair Heimir Már Pétursson skrifar 25. október 2013 11:00 Flugvél Air Canada lenti á Keflavíkurflugvelli fyrir nokkrum árum vegna bilunar í hreyfli vélarinnar.
Air Canada sem hefur yfirburðarstöðu á flugmarkaðnum í Kanada hefur brugðist illa við ákvörðun Icelandair að fljúga til Edmonton í Alberta fylki. Félagið hefur tilkynnt að það ætli að leggja niður flug félagsins frá borginni til Lundúna. Icelandair tilkynnti nýlega að félagið ætli að hefja áætlunarflug milli Edmonton í Alberta í Kanada og Keflavíkur næsta vor. Þetta opnar möguleika farþega frá Edmonton til áframhaldandi flugs til annarra áfangastaða í Evrópu. Air Canada hefur verið ráðandi á flugmarkaðnum í Kanada áratugum saman og beitt áhrifum sínum til að koma í veg fyrir gerð loftferðasamninga Kanada við önnur ríki sem fela í sér heimildir annarra flugfélaga til áætlunarflugs til landsins. Reg Milley flugvallarstjóri Edmonton flugvallar hefur upplýst að Air Canada hafi sent honum bréf og þar sem tilkynnt var að félagið ætlaði að hætta beinu flugi sínu frá Edmonton til Lundúna vegna stuðnings flugvallarins við Icelandair til að hefja flug þaðan til Keflavíkur. Algengt er að flugvellir veiti flugfélögum sem bjóða upp á nýja áfangastaði afsláttarkjör til hvatningar. Opinberlega sögðust talsmenn Air Canada ætla að hætta flugi frá Edmonton til London yfir vetrarmánuðina eða frá janúar til mars, en Milley segir í viðtali við CBS fréttastofuna að ástæðan fari ekki á milli mála í bréfi félagsins til hans. Í bréfinu segir talsmaður Air Canada beinum orðum að tilkynning flugvallarins um samstarf og fjárstuðning við Icelandair hafi gefið Air Canada ástæðu til að endurskoða allt millilandaflug sitt frá Edmonton flugvelli. Ákvörðun Air Canada hefur vakið mikla reiði í viðskiptasamfélaginu í Edmonton. Milley flugvallarstjóri segir bréf sem þetta frá mikilvægum viðskipavini áhyggjuefni, enda skipti flug Air Canada bæði flugvöllinn og samfélagið miklu máli. Þótt flug Icelandair kunni að auka samkeppnina um farþega í flugi til og frá Lundúnum muni flugvöllurinn halda áfram að leita eftir flugfélögum fyrir beint flug til alþjóðlegra áfangastaða.
Mest lesið Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Viðskipti innlent Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Viðskipti innlent Ráðnir forstöðumenn hjá OK Viðskipti innlent Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Viðskipti innlent „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Viðskipti innlent Brynja til Fastus frá Samkaupum Viðskipti innlent Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Viðskipti innlent Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Atvinnulíf Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf Fleiri fréttir Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Sjá meira