Neituðu sök á hrottafengnum líkamsárásum 15. október 2013 10:33 Í Héraðsdómi í morgun. Stefán Logi er fyrir miðju í svartri peysu. MYND/GVA
Þingfesting fór fram í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli gegn Stefáni Loga Sívarssyni og fjórum öðrum mönnum fyrir tvær hrottafengnar líkamsárásir, mannrán og langvinnar pyntingar um mánaðamót júní og júlí síðastliðinna. Þeir neituðu allir sök. Lagðar voru fram tvær framhaldsákærur gegn þeim Stefáni Loga og Stefáni Blackburn fyrir líkamsárásir. Aðalmeðferð í málinu fer fram 9.-11. desember næstkomandi. Þá kom fram að annað fórnarlambið í pyntingarmálunum hefur lagt fram bótakröfu í málinu, sem samkvæmt heimildum Vísis hljóðar upp á svipaða upphæð og sú sem hinn þolandinn hafði lagt fram, um sex milljónir. Ákæra ríkissaksókna er í fjórum liðum og mest ber á þeim Stefáni Loga Sívarssyni, 31 árs, og nafna hans Stefáni Blackburn, 21 árs. Báðir eiga þeir mikla brotasögu. Hinir mennirnir þrír eru fæddir árin 1990 og 1992 og hafa allir komið áður við sögu lögreglu. Ákæran er í fjórum liðum og ástæða er til að vara við lýsingum sem hér fara á eftir. Fyrsti liðurinn snýr að árás á 22 ára mann í samkvæmi í Breiðholti sem hófst klukkan níu að kvöldi 30. júní og stóð fram undir hádegi daginn eftir. Hann hafði þá greint Stefáni Loga frá því að annar maður hefði átt í kynferðislegu sambandi við fyrrverandi kærustu hans. Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa misþyrmt honum allt kvöldið og fram eftir nóttu þar til hann slapp undir hádegi. Samkvæmt ákærunni var maðurinn meðal annars sleginn með keðju, stunginn ítrekað með skrúfjárni, dúkahníf og óhreinum sprautunálum af nöfnunum Stefáni Loga og Stefáni Blackburn, barinn með kylfum, hann kinnbeinsbrotinn, skorinn víða og klippt í eyru hans. Annar ákæruliðurinn fjallar um árás á 25 ára mann, þann sem hafði átt vingott við kærustuna fyrrverandi. Þar segir að honum hafi verið rænt af heimili sínu klukkan hálfeitt sömu nótt. Hann hafi verið barinn ítrekað með kylfum, hann skorinn, rakspíra hellt á brjóstkassa hans og kynfæri og kveikt í. Samkvæmt ákærunni rifnaði efri vör mannsins vegna kylfuhöggs frá Stefáni Loga, sem einnig braut framtönn hans, og í kjölfarið saumaði einn árásarmannanna vörina saman með garni og saumnál. Stefán Logi hafi síðan neytt ofan í hann óþekktar töflur „sem líklega innihéldu deyfandi lyf“, stungið hann með skrúfjárni, og einn mannanna sprautað hann með óþekktu lyfi í rassinn. Um morguninn hafi Stefán Blackburn og annar úr hópi ákærðu ekið með manninn í hús á Stokkseyri, þar sem Stefán hafi slegið hann með belti og einhvers konar snúru í líkamann áður en hann var afklæddur og skilinn eftir nakinn íklæddur svörtum plastpoka í kjallara hússins, bundinn við burðarstoð eftir að þeir hafi „bundið beisli um höfuð honum þannig að mélin voru í munni hans“. Húsráðandinn á Stokkseyri leysti hann úr haldi síðdegis. Hann sætti gæsluvarðhaldi um skeið en er ekki ákærður. Þolandinn krefst rúmlega sex milljóna króna í bætur vegna málsins.Líka ákærður fyrir árás á kærustuna Í ákæruliðum þrjú og fjögur er Stefán Logi ákærður fyrir að hafa í október 2012 ráðist á þáverandi kærustu sína, vafið belti af baðslopp um háls hennar og dregið hana um þannig að henni lá við köfnun, og síðan 30. júní í sumar ráðist inn til hennar og foreldra hennar og hótað henni og föður hennar lífláti.
Stokkseyrarmálið Tengdar fréttir Stefán Logi kærir í fjórða sinn Stefán Logi Sívarsson hefur kært gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur gegn sér og það í fjórða sinn. 3. október 2013 11:44 Stefán Logi áfram í gæsluvarðhaldi Stefán Logi Sívarsson og Davíð Freyr Magnússon, voru úrskurðaðir í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 2. október 2013 16:59 Fórnarlamb Stokkseyrarmálsins krefst sex milljóna í bætur Fórnarlambið í svokölluðu Stokkseyrarmáli krefur kvalara sína um sex milljónir króna í bætur. Hann var bundinn við burðarbita í kjallara klukkustundum saman. 8. október 2013 07:00 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
Stefán Logi kærir í fjórða sinn Stefán Logi Sívarsson hefur kært gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur gegn sér og það í fjórða sinn. 3. október 2013 11:44
Stefán Logi áfram í gæsluvarðhaldi Stefán Logi Sívarsson og Davíð Freyr Magnússon, voru úrskurðaðir í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 2. október 2013 16:59
Fórnarlamb Stokkseyrarmálsins krefst sex milljóna í bætur Fórnarlambið í svokölluðu Stokkseyrarmáli krefur kvalara sína um sex milljónir króna í bætur. Hann var bundinn við burðarbita í kjallara klukkustundum saman. 8. október 2013 07:00