Viðskipti innlent

Nýsköpunarhádegi Innovit

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Kristján Freyr Kristjánsson framkvæmdastjóri Innovit
Kristján Freyr Kristjánsson framkvæmdastjóri Innovit Mynd/Valgarður Gíslason
Er atgervisflótti á Íslandi? Er til nóg af peningum á Íslandi fyrir nýsköpunarfyrirtæki?

Þessum spurningum og mörgum öðrum verður svarað á fyrsta nýsköpunarhádegi Klak Innovit á þessu hausti og fjallað verður um gjaldeyrishöft og áhrif þeirra á sprotafyrirtæki.

Nýsköpunarhádegi Klak Innovit eru haldin í hádeginu á þriðjudögum í frumkvöðlasetrinu Innovation House.

Hvert hádegi hefur þema sem tengist nýsköpun, atvinnusköpun og verðmætasköpun á Íslandi. Nýsköpunarhádegi eru samstarfsverkefni Klak Innovit og Landsbankans. Þá koma háskólarnir og fjöldi félagasamtaka að samstarfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×