Viðskipti innlent

80 herbergja hótel rís í Mývatnssveit

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Alls verður Hótel Laxá um 3000 fermetra að stærð.
Alls verður Hótel Laxá um 3000 fermetra að stærð.
80 herbergja hótel verður opnað í landi Arnarvatns í suðurhluta Mývatnssveitar næsta sumar. Hótelið verður þriggja stjörnu og hefur fengið heitið Hótel Laxá. Byggingaframkvæmdir eru hafnar en það eru þeir Vilhjálmur Sigurðsson og Hjálmar Pétursson ásamt meðfjárfesti sem standa að hótelframkvæmdunum. Þeir eru meðal eigenda Avis og Budget bílaleigunnar á Íslandi og hafa yfir 20 ára reynslu af ferðamennsku.

Mikill metnaður hefur verið lagður í verkefnið og verður hótelið um 3000 fermetrar að stærð. Margrét Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin hótelstjóri. Hún er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á ferðamál frá Háskólanum á Akureyri, iðnrekstrarfræðingur frá sama skóla og með diploma í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum. Margrét hefur áralanga reynslu af rekstri og ferðaþjónustu.

„Markmiðið er að skapa einstaka upplifun fyrir ferðamenn, hvort sem þeir eru innlendir eða erlendir. Við ætlum okkur að veita alhliða þjónustu, þar sem umhverfið fær að njóta sín,“ segir Margrét í tilkynningu.

Grænt hótel í sátt við náttúruna

„Hugmyndin er að þetta verði ,grænt' hótel þar sem rekstur og framkvæmdir verða í sem mestri sátt við náttúruna. Við teljum að umhverfisstefna fyrirtækja skipti ferðamenn sífellt meira máli og ætlum að leggja mikla áhersla á umhverfismál með það fyrir augum að Hótel Laxá hljóti viðurkenningu sem umhverfisvænt hótel.“

Margrét þekkir vel til ferðaþjónustu í Mývatnssveit en lokaverkefni hennar hjá Háskólanum á Akureyri fjallaði einmitt um þolmörk ferðamannastaða, með áherslu á Mývatnssveit sem er einn fjölsóttasti áfangastaður landsins. Þar hefur yfir háannatímann verið mikill skortur á gistiaðstöðu, en hótelrými eykst um 60% með tilkomu Hótel Laxár næsta sumar.

Hótelbyggingin hefur verið fjögur ár í undirbúningi en það er Teiknistofa Pro-ark ásamt Yddu arkitektastofu sem hafa séð um hönnun. Verktakar eru meðal annars Loftorka og MoelvenBygg sem er heimsþekkt norsk einingaverksmiðja, auk margra annarra smærri. Hótel Laxá verður opnað í byrjun sumars árið 2014. Eru bókanir þegar hafnar og lofa góðu að sögn Margrétar.

Framkvæmdir við nýtt hótel í Mývatnssveit eru hafnar.Mynd/Hótel Laxá
Mynd/Hótel Laxá





Fleiri fréttir

Sjá meira


×