Viðskipti innlent

Ný samskiptaleið fyrir iðnaðarmenn og fagfólk - "Vantar þig pípara?“

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
„Fólk spyr til dæmis oft; veistu um góðan pípara? Okkar þjónusta gengur út á að svara þessum spurningum,“ segir Valdimar.
„Fólk spyr til dæmis oft; veistu um góðan pípara? Okkar þjónusta gengur út á að svara þessum spurningum,“ segir Valdimar. mynd/365
Ný vefsíða sem auðveldar fólki að nálgast iðnaðarmenn og annað fagfólk til starfa, opnar formlega á laugardaginn. Fyrirtækið sem rekur síðuna heitir Besta boð.

Það er Valdimar Geir Halldórsson, er framkvæmdarstjóri fyrirtækisins.

„Fólk spyr til dæmis oft; veistu um góðan pípara? Okkar þjónusta gengur út á að svara þessum spurningum,“ segir Valdimar.

Valdimar segir síðuna virka þannig að fagfólk skrái sig inn á síðuna sem áskrifendur. Þar fái þau sitt eigið svæði þar þau koma með upplýsingar um hvers konar þjónustu það býður upp á.

Það fólk sem vantar einhvern í verkefni fyrir sig, fer  á síðuna og skráir hvers konar verk það þarf að láta vinna og þá getur fagfólkið boðið í verkin.

„Tökum sem dæmi að einhver vilji láta slá garðinn sinn átta sinnum yfir sumarið, þá skrifar sá slíka verkbeiðni inn á síðuna og fær svo send tilboð frá þeim sem vinna við slíkt,“ segir Valdimar.

Hann segir þetta hafa verið vaxandi samskiptaleið milli fagfólks og almennings í skandinavíu. „Þetta skilar hraðri endursvörun í verkbeiðnir og fagfólk eyðir minni tíma í verkefnaleit.“

Valdimar segir að í Noregi sé þetta orðin sú leið sem sem flestir nýta sér þegar þá vantar iðnaðarmenn eða einhverja til þess að vinna fyrir sig verk.

„Þegar sá sem sér um verkið lýkur því, skrái hann það á síðuna og kaupandinn samþykkir það og gefur meðmæli í kjölfarið,“ segir Valdimar. „Það verða tveir starfsmenn að vinna við þessa þjónustu, að skrá inn verk og fara yfir meðmæli og annað. Við pössum upp á að báðir aðilar séu sáttir og að fólk viti að hverju það er að ganga.“

Að síðunni koma einnig, Ragnar Pálmar Kristjánsson, hönnunarstjóri og Tómas Hlíðarsson, kerfisstjóri. Þeir vinna nú að því að leggja lokahönd á gerð síðunnar fyrir opnunina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×