Viðskipti innlent

Petrea nýr framkvæmdastjóri Tals

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Tals.
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Tals.
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Tals. Hún tekur við starfinu af Viktori Ólasyni sem sagði upp störfum í júní. Petrea er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og var áður framkvæmdastjóri hjá Símanum og Skjánum. Undanfarin ár hefur hún sinnt ýmsum ráðgjafastörfum ásamt því að sitja í stjórn Fastengis.

„Ég hlakka mjög til að takast á við þetta verkefni. Það eru framundan spennandi tímar hjá Tali þar sem við ætlum að sækja fram. Tal er með stóran hóp viðskiptavina og hér er öflugt starfsfólk. Ég sé þetta sem mjög skemmtilegt tækifæri,“ Petrea í tilkynningu frá Tali.

197 milljón króna tap var á rekstri Tal á síðasta ári. Helsta skýringin á tapi síðasta árs er mikill kostnaður í tengslum við innleiðingu á nýjum fjarskiptasamningi þar sem allir viðskiptavinir Tals voru fluttir af kerfum Vodafone yfir á kerfi Símans. Yfirfærslu á nýtt kerfi lauk í mars 2013 og frá því um mitt ár 2013 hefur verið jafnvægi í rekstri Tals.

„Síðasta ár var virkilega krefjandi fyrir Tal og starfsmenn félagsins. Kostnaðurinn sem hlaust af flutningi viðskiptavina yfir á nýtt fjarskiptakerfi var þungur baggi fyrir félagið. Nú er reksturinn hins vegar kominn í jafnvægi og félagið nýtur góðs af sterku dreifikerfi Símans. Við höfum náð góðum árangri í sölu á síðustu mánuðum og bætt markaðshlutdeild félagsins verulega. Við horfum því björtum augum til framtíðar,“ segir Steinþór Baldursson, stjórnarformaður IP – fjarskipta ehf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×