Viðskipti innlent

Krónan ekki verið veikari síðan um miðjan júní

Haraldur Guðmundsson skrifar
Veiking krónunnar fer út í verðlag.
Veiking krónunnar fer út í verðlag. Mynd/ Vilhelm Gunnarsson
Gengi íslensku krónunnar hefur það sem af er septembermánuði lækkað um 1,3 prósent gagnvart meðaltali helstu viðskiptamynta.

Evran fór á umræddu tímabili úr því að kosta 158,2 krónur í 160,4 krónur. Bandaríkjadalur fór úr því að kosta 119,8 krónur í 121,5 krónur.

Greiningardeild Íslandsbanka greindi frá þessu í Morgunkorni bankans í gær.

Þar segir að krónan hafi ekki verið veikari síðan um miðjan júní á þessu ári og að öll styrkingin sem varð á gengi ­hennar undir lok ágústmánaðar sé gengin til baka. Þrátt fyrir þessa lækkun síðustu daga hefur ­þróunin verið önnur en á sama tíma í fyrra. Um miðjan ágúst 2012 hóf krónan hraða veikingarhrinu og ­lækkun hennar gagnvart meðaltali helstu viðskiptamynta var 5,2 prósent um miðjan september 2012. Gengi krónunnar nú hefur veikst vegna styrkingarinnar undir lok ágústmánaðar en þegar horft er til gengisins um miðjan ágúst á þessu ári er staðan að mestu óbreytt.

Greiningardeild Íslandsbanka reiknar með því að þessi mikla veiking krónunnar haustið 2012 muni ekki endurtaka sig með sama hætti í ár. 



„Minna er um afborganir erlendra lána aðila sem ekki eru með gjaldeyristekjur og árstíðarsveiflan í gjaldeyristekjum ferðaþjónustunnar er minni. Einnig má búast við meiri gjaldeyristekjum af sjávarafurðum þegar líður á haustið vegna aukins kvóta. Þá hefur haft áhrif að Seðlabankinn lýsti því yfir í maí síðastliðnum að hann hygðist verða virkari á gjaldeyrismarkaði á næstunni með það að markmiði að draga úr gengissveiflum,“ segir í Morgunkorni Íslandsbanka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×