Viðskipti innlent

Norðurorka fær rafmagnsbíl

Boði Logason skrifar
Helgi Jóhannesson fékk rafmagnsbílinn afhentan í morgun.
Helgi Jóhannesson fékk rafmagnsbílinn afhentan í morgun. Mynd/norðurorka
Norðurorka fékk í dag rafmagnsbíl afhentan og segir forstjóri fyrirtækisins að mikilvægt sé að taka þátt í framþróuninni með því að reka rafmagnsbíl.

Í tilkynningu frá Norður orku segir að um sé að ræða Mitsubishi I-MiEv sem sé fyrsti fjöldaframleiddi rafmagnsbíllinn í heiminum. Hann kom fyrst á markað árið 2009 og notar eingöngu rafmagn. Hann mengar ekki með CO² eins og bílar með mótor sem brennir jarðefnaeldsneyti.

„Um 18% af þeirri orku sem nýtt er á Íslandi er innflutt jarðefnaeldsneyti og er það aðallega notað í samgöngum og fiskveiðum. Tækifæri Íslendinga til þess að minnka koltvísýringsmengun með notkun raforku í samgöngum er því raunhæfur kostur.

Tækninni í rafmagnsbílum fleygir stöðugt fram þó enn sé nokkuð í land að rafmagnsbílar geti keppt við hefðbundar bifreiðar þegar kemur að langkeyrslu. Rafmagnsbíllinn er hins vegar ótvíræður kostur á styttri vegalengdum innanbæjar og orkukostnaður hans er aðeins brot af hefðbundnum bíl.

 Ef miðað er við 20.000 km akstur á ári þá er áætlaður orkukostnaður um 34.000 kr. sem gerir um 350.000 kr. sparnað á ári ef miðað er við meðal bensín bíl,“ segir í tilkynningu Norðurorku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×