Viðskipti innlent

Guðmundur Karl ráðinn sjóðstjóri hjá Landsbréfum

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Guðmundur Karl Guðmundsson er nýr sjóðstjóri hjá Landsbréfum.
Guðmundur Karl Guðmundsson er nýr sjóðstjóri hjá Landsbréfum. Mynd/Landsbréf
Guðmundur Karl Guðmundsson hefur verið ráðinn sjóðstjóri hjá Landsbréfum hf. Guðmundur Karl hefur víðtæka reynslu af störfum á fjármálamörkuðum. Hann er með B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Frá árinu 2009 hefur Guðmundur Karl starfað sem forstöðumaður einkabankaþjónustu MP Banka og tekið virkan þátt í uppbyggingu þeirrar starfsemi hjá bankanum.  

Á árunum 2004 til 2009 starfaði Guðmundur Karl sem miðlari og forstöðumaður markaðsviðskipta hjá MP Banka en á árunum 2000 til 2004 starfaði Guðmundur Karl hjá Spron Verðbréfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×