Hagnaður N1 129 milljónir króna Haraldur Guðmundsson skrifar 18. september 2013 08:56 Rekstrartekjur N1 á fyrstu sex mánuðum ársins 2013 voru 27.924 milljónir króna. Mynd/Valgarður Gíslason.
Hagnaður N1 hf. á fyrstu sex mánuðum ársins nam 129 milljónum samanborið við 624 milljón króna hagnað á sama tímabili 2012.Rekstrartekjur N1 á fyrstu sex mánuðum ársins 2013 voru 27.924 milljónir króna samanborið við 28.828 milljónir á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 566 milljónum króna samanborið við 1.266 milljónir á sama tímabili 2012. Í lok síðasta árs var rekstur Bílanausts færður í sérstakt félag, sem var selt í maí á þessu ári. Sú breyting hafði að sögn félagsins nokkur áhrif á tekjur og framlegð N1 milli ára en óveruleg áhrif á rekstrarhagnað fyrir afskriftir. „Gengisþróun íslensku krónunnar og þróun á heimsmarkaðsverði olíu hafði umtalsverð neikvæð áhrif á rekstur félagsins í aprílmánuði 2013, en þá styrktist krónan verulega á skömmum tíma um leið og olíuverð lækkaði í dollurum talið. Afli á loðnuvertíð var mun minni en á vertíðinni árið áður, sem var sú besta í áraraðir, og hafði það áhrif á afkomu félagsins. Á fyrri helmingi þessa árs féll til kostnaður vegna undirbúnings skráningar félagsins á markað og vegna sölu á Bílanausti. Áætlað er að á árinu 2013 verði rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir um 2,2-2,3 milljarðar kr. fyrir kostnað við ráðgjöf vegna sölu Bílanausts og fyrirhugaðrar kauphallarskráningar félagsins. Markmið félagsins er að hlutfallið milli rekstrarhagnaðar fyrir afskriftir og framlegðar af vörusölu, eins og þessir liðir koma fram í uppgjörum félagsins, verði á bilinu 27-30%. Félagið hefur jafnframt mótað stefnu varðandi fjármagnsskipan félagsins og arðgreiðslur sem gerir ráð fyrir að a.m.k. 50% af hagnaði ársins verði greidd til hluthafa og að eiginfjárhlutfall félagsins verði um 40%,“ ,“ segir í tilkynningu frá félaginu vegna fjárhagsuppgjörs fyrstu sex mánuði 2013.
Mest lesið Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Sjá meira