Viðskipti innlent

Allt að 114% verðmunur á milli fiskbúða

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Könnunin var gerð í 25 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð.
Könnunin var gerð í 25 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð. Mynd/GVA
Í nýrri könnun ASÍ á fiskafurðum kemur í ljós að verðmunurinn á hæsta og lægsta verði er að lágmarki 75%. Könnunin var gerð í 25 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið sl. mánudag. Kannað var verð á 23 algengum tegundum af fiskafurðum. Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni.

Munur á hæsta og lægsta verði í könnuninni var frá 24% upp í 114%. Mestur verðmunur í könnuninni var á meðalkæstri skötu sem var dýrust á 1.690 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Höfðabakka, en ódýrust á 790 kr./kg. hjá Hafinu Hlíðarsmára en það gerir verðmun upp á 900 kr. eða 114%.

Minnstur verðmunur var á roðflettu og beinlausu þorskflaki sem var ódýrast á 1.490 kr./kg. hjá Fisk kompaní Akureyri og fiskbúðinni Fiskás en dýrust á 1.845 kr./kg. hjá Fjarðarkaupum Hafnarfirði, en það gerir 355 kr. verðmun eða 24%. Roðflett og beinhreinsað ýsuflak sem var til hjá öllum verslunum var ódýrast á 1.590 kr./kg. hjá fiskbúðinni Fiskás og Litlu fiskbúðinni en dýrast á 1.990 kr./kg. hjá Hafbergi og Fiskbúðinni Höfðabakka sem er 25% verðmunur.

Litla Fiskbúðin, Miðvangi í Hafnarfirði kom best út úr könnuninni en í 14 tilvikum af 23 var lægsta verðið að finna í búðinni. Fiskás Hellu var næst oftast með lægsta verðið eða í 3 tilvikum af 23. Meiri dreifing var á hæsta verðinu á milli verslana. Hæsta verðið var hjá Hafbergi Gnoðavogi í 5 tilvikum af 23, hjá Fiskbúðinni Mos Mosfellsbæ í 4 tilvikum af 23 og hjá Hagkaupum og Fiskbúðinni Höfðabakka í 3 tilvikum. Enginn söluaðli átti til allar 23 tegundirnar sem skoðaðar voru í könnuninni en Hafberg átti 22 tegundir og Litla fiskbúðin og Fiskbúðin Hófgerði áttu 21. Fæstar tegundirnar sem skoðaðar voru, voru til hjá Fylgifiskum Suðurlandbraut eða aðeins 5 af 23.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×