Allt að 114% verðmunur á milli fiskbúða Jón Júlíus Karlsson skrifar 18. september 2013 11:59 Könnunin var gerð í 25 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð. Mynd/GVA
Í nýrri könnun ASÍ á fiskafurðum kemur í ljós að verðmunurinn á hæsta og lægsta verði er að lágmarki 75%. Könnunin var gerð í 25 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið sl. mánudag. Kannað var verð á 23 algengum tegundum af fiskafurðum. Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni. Munur á hæsta og lægsta verði í könnuninni var frá 24% upp í 114%. Mestur verðmunur í könnuninni var á meðalkæstri skötu sem var dýrust á 1.690 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Höfðabakka, en ódýrust á 790 kr./kg. hjá Hafinu Hlíðarsmára en það gerir verðmun upp á 900 kr. eða 114%. Minnstur verðmunur var á roðflettu og beinlausu þorskflaki sem var ódýrast á 1.490 kr./kg. hjá Fisk kompaní Akureyri og fiskbúðinni Fiskás en dýrust á 1.845 kr./kg. hjá Fjarðarkaupum Hafnarfirði, en það gerir 355 kr. verðmun eða 24%. Roðflett og beinhreinsað ýsuflak sem var til hjá öllum verslunum var ódýrast á 1.590 kr./kg. hjá fiskbúðinni Fiskás og Litlu fiskbúðinni en dýrast á 1.990 kr./kg. hjá Hafbergi og Fiskbúðinni Höfðabakka sem er 25% verðmunur. Litla Fiskbúðin, Miðvangi í Hafnarfirði kom best út úr könnuninni en í 14 tilvikum af 23 var lægsta verðið að finna í búðinni. Fiskás Hellu var næst oftast með lægsta verðið eða í 3 tilvikum af 23. Meiri dreifing var á hæsta verðinu á milli verslana. Hæsta verðið var hjá Hafbergi Gnoðavogi í 5 tilvikum af 23, hjá Fiskbúðinni Mos Mosfellsbæ í 4 tilvikum af 23 og hjá Hagkaupum og Fiskbúðinni Höfðabakka í 3 tilvikum. Enginn söluaðli átti til allar 23 tegundirnar sem skoðaðar voru í könnuninni en Hafberg átti 22 tegundir og Litla fiskbúðin og Fiskbúðin Hófgerði áttu 21. Fæstar tegundirnar sem skoðaðar voru, voru til hjá Fylgifiskum Suðurlandbraut eða aðeins 5 af 23.
Mest lesið Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira