Veikur fjármálamarkaður dregur úr samkeppnishæfni Íslands Haraldur Guðmundsson skrifar 4. september 2013 09:23 Sömu þættirnir og áður draga úr samkeppnishæfnii og getu landsins, þrálátur veikleiki efnahagsumhverfisins og veikur fjármálamarkaður.
Ísland fellur um eitt sæti frá árinu 2012 í mælingum Alþjóðaefnahagsráðsins á samkeppnishæfni þjóða. Ísland vermir nú 31. sætið og hefur síðustu þrjú ár horft fram á litlar breytingar á milli ára og verið í hópi landa eins og Kína, Eistlands og Púerto Ríkó. Í september 2008 vermdi Ísland 20. sætið en féll um sex sæti í framhaldinu og hefur ekki enn náð fyrri stöðu hvað samkeppnishæfni varðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem aflar gagna fyrir Alþjóðaefnahagsráðið. Þar segir að það séu enn sömu þættirnir sem dragi úr samkeppnishæfnii og getu landsins, þrálátur veikleiki efnahagsumhverfisins og veikur fjármálamarkaður. Alþjóðaefnahagsráðið telur þó einnig upp nokkra mikilvæga samkeppnisþætti sem Ísland hefur hagnast af og hjálpa landinu að færast nær velgengni í efnahagslífinu og aukinni sjálfbærni. „Hér er um að ræða þætti eins og stöðu heilbrigðismála og menntunar á öllum stigum og viðskiptalíf sem drifið er áfram af nýsköpun og áherslu á nýja tækni sem eykur framleiðni á mörgum sviðum. Það hversu sveigjanlegur vinnumarkaðurinn á Íslandi er hefur einnig mikil áhrif á virkni markaðarins,“ segir í tilkynningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Samkvæmt mælingum Alþjóðefnahagsráðsins er Sviss fremst þegar kemur að samkeppnishæfni þjóða. Þar á eftir koma Singapore, Finnland, Þýskaland og Bandaríkin. „Bandaríkin halda áfram að vera leiðandi í framleiðslu og markaðssetningu á nýskapandi vörum og þjónustu og má rekja jákvæðan viðsnúning þeirra til bættrar stöðu á fjármálamörkuðum og sterkari tiltrúar á opinberar stofnanir landsins. Hins vegar eru uppi ákveðnar áhyggjur af efnahagslegum stöðugleika þjóðarinnar en þar lenda Bandaríkin í 117 sæti af 148 mögulegum. Í Evrópu hefur mikil áhersla verið lögð á að bregðast við skuldasöfnun almennings og forðast upplausn Evrunnar og það á kostnað þátta sem hafa mikið með samkeppnishæfni þjóðanna að gera. Þannig þurfa lönd eins og Spánn, Ítalía, Portúgal og ekki síst Grikkland að halda áfram að takast á við mikla veikleika heima fyrir ekki síst hvað varðar virkni og afköst heimamarkaða, eflingu nýsköpunar og bætt aðgengi að fjármögnun,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Leggja á 39 prósenta skatt á eignir slitabúanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Sjá meira