Viðskipti innlent

Fjörkippur á fasteignamarkaðinum

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 128. Þetta er töluvert yfir meðaltali fjölda samninga á viku undanfarna þrjá mánuði sem er 101 samningur. Af þessum 128 samningum voru 99 samningar um eignir í fjölbýli, 21 samningur um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var rúmlega fjórir milljarðar króna og meðalupphæð á samning 31,3 milljónir króna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×