Viðskipti innlent

Creditinfo upplýsir þróunarlöndin um skynsama viðskiptahætti

Lovísa Eiríksdóttir skrifar
Reynir Grétarsson, stjórnarformaður Credit info, segir að upplýsingar séu grundvallaratriði í nútíma samfélagi.
Reynir Grétarsson, stjórnarformaður Credit info, segir að upplýsingar séu grundvallaratriði í nútíma samfélagi. Mynd/Valli
Íslenska fyrirtækið Creditinfo stendur nú fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um áhættustjórnun. Ráðstefnan nefnist Global Forum og verður haldin í Prag í Tékklandi í september næstkomandi.

Ráðstefnan á að skapa vettvang fyrir fólk sem vinnur með fjárhagsupplýsingar að skiptast á skoðunum við innlenda og erlenda kollega sína.

„Upplýsingar eru grundvallaratriði í nútímaefnahagslífi og megintilgangur Creditinfo er að safna, vinna og miðla upplýsingum sem nýta má til að þess að auðvelda stjórnendum og starfsmönnum fyrirtækja að taka upplýstar og skynsamlegar ákvarðanir,“ segir Reynir Grétarsson, stjórnarformaður Creditinfo,

Reynir bætir við að ráðstefnunni sé ætlað að bæta innviði fjármála- og efnahagskerfa heimsins þar sem markmiðið er að auðvelda fólki og fyrirtækjum að verða sér úti um lánsfjármagn á viðráðanlegum kjörum.

Þessi ráðstefna er ekki síst hugsuð til þess að dreifa þekkingu til þróunarríkjanna. „Þessi vanþróaðari markaður, eins og í Afríku, er nú að koma sér upp fjárhagsupplýsingakerfum til þess að geta tryggt eðlilegt og heilbrigt viðskiptalíf,“ segir Samúel White, sérfræðingur á markaðs- og viðskiptaþróunarsviði hjá Creditinfo.

Creditinfo opnaði nýlega skrifstofu í Tansaníu og bendir Samúel á að meiri þekking í vanþróaðari ríkjum auki hagvöxt til langs tíma og að mikilvægt sé að auðvelda fyrirtækjum þar til þess að verða sér út um lánsfjármagn á viðráðanlegum kjörum.

„Kjarninn að ráðstefnunni er fyrst og fremt að fá færustu aðila í áhættustjórnun viðskipta til að miðla þekkingu sinni og reynslu, til þess að lönd sem hafa minni þekkingu geti tekið ákvarðanir sem eru byggðar á einhverjum upplýsingum.“

Á meðal ræðumanna á ráðstefnunni verða stjórnendur Paypal, Societe Generale Group, International Finance Corporation (IFC), Bank of Georgia og fulltrúar fjárhags- og viðskiptaupplýsingaveita frá fjórum heimsálfum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×