Eik kaupir Smáratorg auk fleiri fasteigna Gunnar Valþórsson skrifar 23. ágúst 2013 13:47 Á meðal helstu leigutaka eru Rúmfatalagerinn, Deloitte, Alvogen og Bónus.
Fasteignafélagið Eik skrifaði í dag undir kaupsamning við fasteignafélagið SMI ehf um kaup Eikar á rúmlega sextíu og tvö þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði í Kópavogi og á Akureyri. Um er að ræða fasteignirnar við Smáratorg í Kópavogi auk fasteigna á Gleráreyrum og við Dalsbraut á Akureyri. Samningurinn er gerður með fyrirvara um fjármögnun og samþykki hluthafafundar Eikar, stjórna beggja félaga og Samkeppniseftirlitsins. Leigutakar að þessum fasteignum eru í dag um sjötíu og fimm og mun eignasafn Eikar stækka um rúm sjötíu prósent. Kaupverð er sagt trúnaðarmál. Garðar Hannes Friðjónsson er forstjóri Eikar: „Eik fasteignafélag hf. fagnar nýjum hópi leigutaka þegar kaupin verða um garð gengin. Um er að ræða mjög spennandi eignir SMI ehf., vel staðsett verslunar- og skrifstofuhúsnæði sem falla mjög vel að eignasafni Eikar. Kaupin eru stór liður í stefnu og áformum Eikar um stækkun félagsins og mun Eik halda áfram að skoða áhugaverð kauptækifæri sem bjóðast á fasteignamarkaðnum á Íslandi." „Hluthafar SMI ehf. eru mjög ánægðir með sölu helstu eigna SMI ehf. til Eikar fasteignafélags hf. Viðskiptin eru mjög ásættanleg fyrir félagið og vil ég óska Eik til hamingju með kaupin" segir Davíð Freyr Albertsson, framkvæmdastjóri SMI ehf.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent