Viðskipti innlent

Finnur Oddsson ráðinn forstjóri Nýherja

Finnur Oddsson.
Finnur Oddsson.
Finnur Oddsson hefur verið ráðinn forstjóri Nýherja hf. og tekur við starfinu af Þórði Sverrissyni.

Finnur hefur verið aðstoðarforstjóri Nýherja frá árinu 2012 og var áður framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Hann tekur til starfa sem forstjóri 1. september en Þórður verður stjórn og nýjum forstjóra til ráðgjafar næstu mánuði.

„Sú reynsla og þekking sem Finnur hefur mun nýtast félaginu vel  á spennandi tímum. Finnur þekkir fyrirtækið vel nú þegar, en hann hefur stýrt innlendum rekstri frá því í fyrra. Nýherji hefur góða stöðu á markaði og reksturinn innanlands hefur gengið ágætlega undanfarin ár. Við teljum því allar forsendur til þess að félagið geti dafnað vel. Ég þakka Þórði Sverrissyni fyrir hönd Nýherja störf hans í þágu félagsins á undanförnum tólf árum. Félagið hefur vaxið undir hans stjórn og haslað sér völl á nýjum sviðum,“ segir Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður Nýherja, í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Það er mjög spennandi verkefni að taka við stjórnartaumunum í Nýherja á þessum tímapunkti.  Við búum að afar hæfu starfsfólki, öflugum samstarfsaðilum og ekki síst góðum viðskiptavinum til langs tíma.  Þetta er sterkur grunnur til framtíðar, en það er sameiginlegt verkefni okkar allra sem hér störfum að bjóða viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu á hagstæðu verði.  Ég hlakka til að vinna með stjórnendum og starfsfólki að því að efla okkar þjónustuframboð og með því bæta rekstur til skemmri og lengri tíma,“ segir Finnur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×