Íslandsbanki hagnaðist um 11,2 milljarða Haraldur Guðmundsson skrifar 28. ágúst 2013 10:52 Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir afkomu á öðrum ársfjórðungi í takt við áætlanir.
Hagnaður Íslandsbanka á fyrri helmingi ársins var 11,2 milljarðar króna. Þar af var hagnaður á öðrum ársfjórðungi 6,6 milljarðar. Bankinn hagnaðist í fyrra um 11,6 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins og 6 milljarða á öðrum ársfjórðungi 2012. Þetta kemur fram í tilkynningu bankans um afkomu á öðrum ársfjórðungi 2013. Þar segir að heildareignir bankans voru 823 milljarðar króna við lok tímabilsins og útlán til viðskiptavina lækkuðu um 1% í 539 milljarða. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 17,4% á öðrum fjórðungnum samanborið við 18,6% á sama tímabili í fyrra. Sé horft til fyrri árshelmings var arðsemin 14,8% en 17,9% á sama tíma í fyrra. Lækkun á arðsemi skýrist að sögn bankans að mestu af hærra eigin fé, sem hefur hækkað um 15% á milli ára, eða frá 135 milljörðum króna í 156 milljarða króna við lok júní 2013. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir afkomu á öðrum ársfjórðungi í takt við áætlanir og jákvæð samlegðaráhrif vegna sameininga sem séu að koma fram á báðum hliðum rekstrarreikningsins. „Við erum ánægð með afkomu fyrri hluta ársins. Við náðum að lækka kostnað um hálfan milljarð frá sama tíma í fyrra en lækkun kostnaðar hefur verið okkar aðalmarkmið á árinu. Jafnframt sáum við góðan vöxt í þóknunartekjum bankans,“ segir Birna Einarsdóttir
Mest lesið Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Neytendur Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Viðskipti innlent Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Viðskipti erlent Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Viðskipti innlent Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Samstarf Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Viðskipti innlent Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Viðskipti innlent Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Sjá meira