Harmageddon

Hljómsveitin Filter í viðtali við X-ið 977

Ómar Úlfur skrifar
Richard Patrick er goðsögn í bransanum.
Richard Patrick er goðsögn í bransanum.
Hljómsveitin Filter lék nýverið í Írak fyrir bandaríska hermenn og segir Richard Patrick, forsprakki sveitarinnar að það hafi verið mögnuð tilfinning að halda tónleika þar sem að hættan  á sprengjuregni sé raunveruleg.

Þetta kom fram í spjalli sem að X-977 átti við hljómsveitina á Reading tónlistarhátíðinni um seinustu helgi og hægt er að hlusta á hér að ofan.





Richard sagði jafnframt að starf rokkhljómsveitar sé ansi auðvelt sé miðað við það sem að landgönguliðar lendi í eftir því sem aðdáendur Filter í hernum hafi sagt honum.





Filter sló í gegn með smáskífulaginu Take a Picture af plötunni Title Of Record árið 1999 og lagði sveitin upp laupana þremur árum síðar þegar að Richard fór í meðferð í miðju tónleikaferðalagi . Árið 2007 tók  Filter til starfa að nýju og platan The Sun Comes Out Tonight kom út núna í júní. Lagið What Do You Say hefur gert góða hluti á amerískum rokkvinsældarlistum og ætlar sveitin að túra um heimalandið með haustinu með vinum sínum í Stone Temple Pilots








×