Traust almennings á fjármálafyrirtækjum eykst verulega Valur Grettisson skrifar 4. júlí 2013 09:59 Um 59% Íslendinga eru jákvæðir gagnvart sínum aðalviðskiptabanka.
Um 59% Íslendinga eru jákvæðir gagnvart sínum aðalviðskiptabanka og um 56% jákvæðir gagnvart sínu aðaltryggingafélagi. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem markaðsrannsóknafyrirtækið MMR gerði fyrir Samtök fjármálafyrirtækja í júní. Samtök fjármálafyrirtækja hafa kannað afstöðu fólks til fjármálafyrirtækja á undanförnum árum. Könnunin í ár sýnir að Íslendingar eru jákvæðari nú en á undanförnum árum gagnvart þeim viðskiptabönkum og tryggingafélögum sem þeir eiga í viðskiptum við. Þannig var hlutfall þeirra sem voru mjög eða frekar jákvæðir gagnvart viðskiptabanka sínum 39% árið 2010 og hlutfall þeirra sem voru jákvæðir gagnvart sínu tryggingafélagi tæplega 42%. Einnig var spurt um traust í könnuninni. Samkvæmt henni bera tæplega 50% traust til síns aðalviðskiptabanka og tæplega 49% til síns aðaltryggingafélags. Árið 2010 bar hinsvegar einungis þriðjungur landsmanna traust til síns aðalviðskiptabanka og aðaltryggingafélags samkvæmt könnuninni. Sama þróun er staðfest þegar spurt er um fjármálageirann í heild sinni. Um 10% eru mjög eða frekar jákvæðir gagnvart fjármálafyrirtækjum almennt en hlutfallið var einungis um 3% árið 2010. Um 37% sögðust vera bæði jákvæðir og neikvæðir gagnvart geiranum. Ríflega 9% bera traust til fjármáfyrirtækja hér á landi sem er mikið stökk frá fyrri árum, en hlutfallið var einungis 3% árið 2010. Um 36% bera hvorki mikið né lítið traust til fjármálafyrirtækja almennt. Könnunin var gerð dagana 13. til 18. júní. Um er að ræða netkönnun sem MMR stóð að og var úrtakið Íslendingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR og svöruðu 912 einstaklingar spurningunum í könnuninni.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira