Viðskipti innlent

Leyfi veitt til að kanna virkjun Skjálfandafljóts

Kristján Már Unnarsson skrifar
Orkustofnun hefur veitt fyrirtækjunum Landsvirkjun og Hrafnabjargavirkjun hf. rannsóknarleyfi vegna virkjunar í efri hluta Skjálfandafljóts við Aldeyjarfoss. Svæðið er í biðflokki rammaáætlunar.

Goðafoss er frægasti fossinn í Skjálfandafljóti enda í alfaraleið við hringveginn en það eru engin áform uppi um að virkja hann. En það eru fleiri aflmiklir fossar í fljótinu sem færri hafa séð, eins og Aldeyjarfoss við Sprengisandsleið efst í Bárðardal þar sem Skjálfandafljót fellur ofan af hálendisbrúninni. Þar eru einnig Ingvararfoss og Hrafnabjargafoss.

Hugmyndir hafa lengi verið um að virkja þessa fossaröð, fyrst með svokallaðri Íshólsvatnsvirkjun en í seinni tíð með Hrafnabjargavirkjun. Ein útfærsla virkjunar gerir ráð fyrir að fljótið verði stíflað við Hrafnabjörg, vatnið síðan leitt í sex kílómetra göngum í stöðvarhús neðan við Aldeyjarfoss en við þetta yrði til 27 ferkílómetra miðlunarlón.

Orkustofnun hefur nú veitt Landsvirkjun og félaginu Hrafnabjargavirkjun sameiginlegt rannsóknarleyfi til fjögurra ára til að meta hagkvæmni virkjunarkosta og hvort unnt sé að finna ásættanlega tilhögun. Orkutofnun tekur fram að leyfið feli aðeins í sér heimild til að framkvæma mælingar og rannsóknir á leyfistímanum en í því felist hvorki heimild til nýtingar eða virkjunar né felist í því fyrirheit um virkjunarleyfi.

Sveitarfélagið Þingeyjarsveit leggst gegn hugmyndum um virkjun Skjálfandafljóts en tekur fram í umsögn að það geri ekki athugasemd við rannsóknarleyfi.


Tengdar fréttir

Ítreka andstöðu við áform um virkjanir

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar ítrekar andstöðu við virkjanir í Skjálfandafljóti. Landvernd fagnar yfirlýsingunni og hvetur til þess að sveitarfélagið styðji friðlýsingu fljótsins í heild. Norðurorka skoðar hvað fyrirtækið gerir í framhaldinu.

Sækja bæði um rannsóknarleyfi við Aldeyjarfoss

Tvö stærstu orkufyrirtæki landsins, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur í samstarfi við Norðlendinga, bítast nú um rannsóknarleyfi vegna 90 megavatta virkjunar við Aldeyjarfoss í Skjálfandafljóti. Orkustofnun þarf að gera upp á milli þeirra þar sem aðeins einn aðili getur haft slíkt leyfi á hverjum tíma. Virkjun Skjálfandafljóts efst í Bárðardal er áratugagömul hugmynd, um tíma var hún kölluð Íshólsvatnsvirkjun en nú Hrafnabjargavirkjun.

Fyrrverandi þingmaður vill verja Hrafnabjargafoss

Húsvíkingurinn Jón Ármann Héðinsson, fyrrverandi alþingismaður, hvetur til þess að Skjálfandafljót verði látið í friði. Hann segir að svokölluð Hrafnabjargavirkjun muni ekki aðeins hafa áhrif á Aldeyjarfoss heldur einnig á fagurt umhverfi Hrafnabjargafoss, sem fáir hafi séð. Við greindum í gær frá umsóknum tveggja orkufyrirtækja um leyfi til rannsókna við ofanvert Skjálfandafljót til undirbúnings virkjun við Aldeyjarfoss sem kölluð er Hrafnabjargavirkjun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×