Kadmíum yfir leyfilegum mörkum í áburði frá Skeljungi 12. júní 2013 11:07
Komið hefur í ljós að áburður frá breskum birgja Skeljungs (áburðarframleiðandanum Origin) hafi innihaldið meira magn kadmíums en leyfilegt er. Skeljungi barst tilkynning frá Matvælastofnun (MAST) þessa efnis síðdegis í gær. Kemur þetta Skeljungi mjög á óvart. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að íslenskar reglur um magn kadmíums, sem eru með þeim strangari sem þekkjast, heimila aðeins áburð með kadmíum-innihaldi undir 50 mg/kg P. Sýni sem tekin voru á vegum Matvælastofnunar reyndust innihalda of mikið magn kadmíums – eða á bilinu 53 til 111 mg/kg P. Skeljungur fékk fyrr á árinu niðurstöður mælinga óháðrar rannsóknarstofu í Bretlandi (NRM) um að kadmíum-magn fosfórs sem nota skyldi í áburð fyrir Íslandsmarkað í ár væri langt innan leyfilegra marka. NRM mældi kadmíum-magn áburðar frá Skeljungi einnig á síðasta ári og reyndust niðurstöðurnar þá vera í fullu samræmi við sjálfstæðar sýnatökur og mælingar Matvælastofnunar, þ.e. magn kadmíums reyndist langt innan viðmiðunarmarka. Ósamræmið í niðurstöðum mælinganna nú kemur Skeljungi því í opna skjöldu. "Skeljungur hefur dregið lærdóm af samskonar máli sem upp kom árið 2011 og leggur því mikla áherslu á að upplýsa með skjótum hætti alla þá aðila sem málið varðar. Tilkynning hefur þegar verið send til viðskiptavina sem keyptu umræddan áburð. Fyrirtækið mun veita nánari upplýsingar um málið um leið og þær berast og grípa til viðeigandi aðgerða í samráði við Matvælastofnun. Ekki þarf að fara í grafgötur um að Skeljungur lítur þetta mál afar alvarlegum augum og biðst velvirðingar," að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Sjá meira