Íslenskir launamenn eru tvo daga að vinna fyrir tímatekjum forstjóra 13. júní 2013 09:16 Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Launamaður á Íslandi, sem er með meðallaun, er að jafnaði tvo vinnudaga að vinna fyrir sömu upphæð og íslenskur forstjóri fær að meðaltali í kaup á hverjum klukkutíma. Þetta kemur fram í hagfræðitímaritinu The Economist. Tímaritið hefur tekið saman hvað launamenn í mismunandi löndum eru að meðaltali lengi að vinna fyrir sömu upphæð og forstjórar fyrirtækja. Ísland kemur nokkuð vel út í þessari samantekt en aðeins í Noregi og Sviss tekur það launamenn færri daga að vinna fyrir klukkutímakaupi forstjóra en á Íslandi. Munurinn getur verið sláandi. Þannig er launamaður með meðallaun í Rúmeníu rúmlega 12 daga að vinna fyrir sama kaupi og forstjórar þar í landi fá á tímann. Munurinn er aðeins minni í Úkraníu þar sem launamaður er tæpa 11 daga að vinna fyrir tímakaupi forstjórans. Raunar kemur fram að munurinn er mestur í ríkjum sem áður töldust til Sovétríkjanna sem og á Spáni og Ítalíu. Noregur og Ísland er í hópi þeirra landa þar sem þessi launamunur er minnstur og Danmörk er einnig neðarlega á listanum. Í Svíþjóð hinsvegar tekur það launamann tæpa fimm daga að vinna fyrir tímakaupi forstjóra þar í landi. Í The Economist kemur fram að samantekin nær yfir árið í fyrra og byggir á upplýsingum og tölum frá Samtökum evrópskra atvinnurekenda (Federation of European Employers). Sjá nánar hér.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Sjá meira