Spegilbjartur lax í Damminum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 2. júní 2013 19:35 Nýrunninn tveggja ára lax á sem giskað er á að sé 12 til 14 pund sást í Damminum í Blöndu í dag. Mynd / Höskuldur Birkir Erlingsson
Lax er genginn í Blöndu. Þetta kemur fram í skeyti frá Höskuldi Birki Erlingssyni, leiðsögumanni við ánna.Höskuldur kveðst hafa fylgst með síðustu daga hvort lax sé kominn í Blöndu. "Skilyrðin til að sjá laxinn hafa verið erfið, mikið vatn og litað. En nú brá svo við að nú fyrr í dag er ég var á "útkikkinu" þá reisti sig lax í veiðistaðnum Damminum," skrifar Höskuldur sem áætlar að um sé að ræða nýgenginn 12 til 14 punda lax sem hafi verið spegilbjartur og fallegur. "Nú má sumarið fara að koma," segir Hökskuldur sem tók meðfylgjandi mynd fyrr í dag af Damminum og neðri hluta veiðisvæðis 1 í Blöndu. Á því svæði hefst sumarveiðin á miðvikudag. Veiðin byrjar hins vegar 20. júní á efri svæðunum þremur.
Stangveiði Mest lesið Mikill áhugi á veiði í Elliðaánum Veiði 120 laxar á land í Norðurá í gær Veiði Góð skot á Tannastaðatanga Veiði 111 sm hrygna veiddist í Víðidalsá Veiði Veiðitölur LV: Vikuveiðin 30 laxar í Norðurá! Veiði Flugan Zelda er ekki lengur leyndarmál Veiði Tími sjóbirtingsins að renna upp Veiði Merkingarátak í Ytri Rangá Veiði Mikið sótt í 2-3 stanga árnar Veiði Mikið líf í Vestmannsvatni Veiði