Smáralind ehf. sýknað af 1.3 milljarða kröfu þrotabús 31. maí 2013 08:08
Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hefur verið sýknað af kröfum þrotabús Norðurturnsins með dómi Hæstaréttar frá því í gær. Eftir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur síðla árs 2012 var niðurstöðunni áfrýjað af þrotabúi Norðurturnsins. Niðurstaða dagsins í dag er í samræmi við fyrri niðurstöðu. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að skiptastjóri þrotabús Norðurturnsins ehf., fyrrum systurfélags Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. stefndi Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf. til greiðslu kröfu að fjárhæð 1.300.000.000 kr. með dráttarvöxtum frá og með 30. mars 2009 til greiðsludags, byggt á því að Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hafi undirgengist skuldbindingu um að leggja til þá fjármuni til byggingar fasteignar við Smáralind, svokallaðs Norðurturns. Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hafnaði þeirri kröfu um að félaginu bæri að greiða hluta byggingakostnaðar á þeirri forsendu að engar samþykktir finnist í gögnum félagsins fyrir þátttöku í byggingakostnaðinum, með dómnum er það viðhorf staðfest. Þess ber að geta að í tengslum við skráningu Regins hf. á markað sl. vor þá gaf Landsbankinn hf. út skaðleysisyfirlýsingu til handa Eignarhaldsfélagi Smáralindar ehf., dótturfélagi Regins hf., vegna dómsmálsins, þannig að niðurstaða þess hefði engin áhrif á félagið, þar sem Landsbankinn hf. myndi taka yfir greiðsluskyldu gagnvart stefnanda ef til hennar kæmi.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Fleiri fréttir Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Sjá meira