Brautskráningum fækkar í framhaldsskólum en fjölgar í háskólum 27. maí 2013 09:35 Hvítir kollar á útskrift. Mynd/ Halldór Sveinbjörnsson.
Alls brautskráðust 5.584 nemendur af framhaldsskólastigi skólaárið 2010-2011. Það er fækkun um 201 nemanda frá fyrra ári, eða 3,5%. Stúlkur voru nokkru fleiri en piltar meðal brautskráðra eða 53,8% nemenda. Á sama tíma hafa brautskráðir úr háskólum aldrei verið fleiri. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að fækkunina má rekja til færri brautskráninga úr starfsnámi á framhaldsskólastigi. Þeim fækkaði um 362 frá fyrra ári í 2.957, eða um 10,9%. Miklu munar um færri sveinsprófs brautskráningar, eða 560 á móti 644 skólaárið áður. Karlar voru tæplega 80% þeirra sem luku sveinsprófi. Brautskráningar með iðnmeistarapróf voru 188, 13 fleiri en árið á undan (7,4% fjölgun). Karlar voru 69,7% meistara og einn af hverjum fjórum voru 40 ára eða eldri þegar þeir brautskráðust sem iðnmeistarar. Alls útskrifuðust 3.232 stúdentar úr 34 skólum skólaárið 2010-2011; 67 fleiri en skólaárið áður (2,1% fjölgun). Ekki hafa áður brautskráðst fleiri stúdentar á einu skólaári og aldrei áður hafa svo margir skólar brautskráð stúdenta. Hlutfall stúdenta af fjölda tvítugra hækkaði umtalsvert frá fyrra ári, úr 63,6% í 69,2%, og hefur ekki verið hærra. Konur voru 57,2% nýstúdenta. Á háskóla- og doktorsstigi útskrifaðist 4.281 nemandi með 4.322 próf skólaárið 2010-2011 og hafa þeir ekki verið fleiri frá upphafi. Tæplega 65% þeirra sem luku háskólaprófi voru konur. Brautskráðum háskólanemendum fjölgaði um 4,8% frá fyrra ári. Alls luku 1.181 meistaragráðu og hafa ekki verið fleiri á einu skólaári. Nemendum sem luku diplómanámi að lokinni Bachelorgráðu fjölgaði um 18,2% og voru 527. Brautskráðir doktorar voru 48 á skólaárinu, 26 karlar og 22 konur. Aldrei áður hafa fleiri lokið doktorsprófi á einu skólaári en mest höfðu brautskráðst 33 doktorar 2009-2010. Rúmlega einn af hverjum fjórum doktorum voru 40 ára eða eldri þegar þeir luku doktorsnámi og þrír af hverjum fjórum voru 30 ára eða eldri. Rúmlega einn af hverjum þremur doktorum skólaárið 2010-2011 voru erlendir ríkisborgarar, 17 alls.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent