Tuttugu stærstu hluthafarnir eiga 70% af öllu hlutafé í Kauphöllinni 29. maí 2013 07:09
Tuttugu stærstu eigendur hlutafjár íslenskra félaga í Kauphöll Íslands eiga samtals um 70% markaðsvirðis hlutafjár m.v. þær upplýsingar sem listar stærstu hluthafa geyma. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka. Stærsti eigandinn er Lífeyrissjóður verslunarmanna með rúmlega 9% af heildinni en þar á eftir koma fjárfestingarfélögin Eyrir og William Demant, stærstu hluthafar Marel og Össurar, og svo Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) og tengdir sjóðir. Samanlagt markaðsvirði félaganna í lok síðustu viku var 403 milljarðar kr. eða sem nemur 24% af landsframleiðslu ársins í fyrra. Í Markaðspunktunum segir að listar yfir 20 stærstu hluthafa félaganna veita upplýsingar um eignarhald sem samsvarar 337 milljörðum kr. eða 84% af samanlögðu markaðsvirði félaganna. Af þessu að dæma ætti eignarhald íslenskra aðila að vera um 75% og eignarhlutur erlendra aðila um fjórðungur.Danir og Bandarikjamenn stærstu erlendur eigendurnir Stærstu erlendu fjárfestarnir á íslenska hlutabréfamarkaðinum eru danska fjárfestingarfélagið William Demant Invest sem á 41% hlut í Össuri og sjóðir bandaríska eignarhaldsfélagsins Yucaipa Companies eiga 25% í Eimskip. Að öðru leyti er erlenda hluthafa helst að finna á hluthafalistum Marel og Össurar. „Það kemur líklega fáum á óvart lífeyrissjóðir eru stærstu hluthafar íslenska hlutabréfamarkaðarins. Með beinum hætti eiga lífeyrissjóðir a.m.k. 31% af hlutabréfum íslenskra félaga sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Til viðbótar eru lífeyrissjóðir óbeinir eigendur með því að eiga hlutdeildarskírteini í sjóðum sem reknir eru af rekstrarfélögum,“ segir í Markaðspunktunum. „Að auki eiga lífeyrissjóðir ríflegan meirihluta í Framtakssjóði Íslands, sem þar til nýverið var einn stærsti eigandi skráðra félaga í Kauphöllinni. Það verður því ekki annað sagt en að lífeyrissjóðirnir hafi staðið vel að því að reisa við íslenskan hlutafjármarkað í kjölfar hrunsins og notið góðs af auknum stöðugleika og verðhækkun síðustu misserin. Lífeyrissjóðir eru stærstu fagfjárfestar landsins og í gegnum þá fjármagnar lífeyrissparnaðar sjóðfélaga atvinnulíf á Íslandi. Á móti njóta sjóðfélagar ávöxtunar á lífeyriseign sína. Samkvæmt tölum Seðlabankans áttu íslenskir lífeyrissjóðir íslensk hlutabréf að virði 199 milljarða kr. í lok mars s.l. eða sem samsvarar 8% af eign sjóðanna. Til viðbótar áttu þeir 20 milljarða kr. í innlendum hlutabréfasjóðum.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira