Viðskipti innlent

FME endurgreiðir eftirlitsgjald í framhaldi af dómi

Fjármálaeftirlitið (FME) mun endurgreiða oftekið eftirlitsgjald í framhaldi af því að héraðsdómur felldi úr gildi ákvörðun eftirlitsins um að leggja gjaldið á.

Fjallað er um málið á vefsíðu FME. Þar segir að með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp 25. mars var felld úr gildi ákvörðun stjórnar Fjármálaeftirlitsins um að leggja umframeftirlitsgjald  á tiltekinn lífeyrissjóð vegna kostnaðar við störf ráðgjafarnefndar eftirlitsins vegna mats á hæfi stjórnarmanna.

Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að una dóminum og endurgreiða umræddan kostnað. Stofnunin mun auk þess endurgreiða öllum þeim aðilum sem greiddu sambærilegt gjald vegna starfa nefndarinnar, en gjaldið var innheimt á árunum 2010 og 2011.

Um er að ræða 13 aðila sem fá endurgreiddar samtals tæpar 14 milljónir króna, auk vaxta samkvæmt lögum um greiðslu oftekinna skatta og gjalda, að því er segir á vefsíðunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×