Greiðsla á risavöxnum ríkisbréfaflokk veikir gengi krónunnar 13. maí 2013 12:57
Ríkissjóður þarf að greiða upp rúmlega 74 milljarða kr. á föstudag en þá er risavaxinn flokkur ríkisskuldabréfa á gjalddaga. Um er að ræða flokkinn RIKB13. Veikingu krónunnar að undanförnu má sennilega rekja til þessa uppgjörs. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að gjalddagi ríkisbréfaflokksins á föstudaginn sé líklegur til að hafa talsverð áhrif á skuldabréfamarkaðinn, enda um stærsta gjalddaga óverðtryggðra ríkisbréfa frá upphafi að ræða. Þá eru líkur á að gjaldeyriskaup erlendra aðila verði umtalsverð eftir gjalddagann, og gæti það raunar skýrt veikingu krónu síðustu daga að stórum hluta. Gjalddaginn á föstudag er óvenju stór í sniðum. Um síðustu mánaðamót voru alls útistandandi 84,9 milljarðar kr. af RIKB13-bréfum samkvæmt nýlega útgefnum Markaðsupplýsingum Lánamála. Þar af voru verðbréfalán 10,7 milljarðar kr. en 74,1 milljarð kr. þarf ríkissjóður að greiða út á föstudag. „Við gerum því ráð fyrir að u.þ.b. 75 milljarðar kr. leiti í aðra ávöxtunarkosti eftir gjalddagann á föstudag. Efalítið mun stór hluti þess fjár liggja í innlánsreikningum fjármálastofnana í einhvern tíma fyrst eftir gjalddagann en skila sér síðan í talsverðum mæli inn á markað þegar líður á árið,“ segir í Morgunkorninu. „Krónan hefur veikst nokkuð undanfarna viku og gæti sú veiking að okkar mati tengst gjalddaganum, þar sem bankarnir þurfa hugsanlega að hafa handbæran talsverðan gjaldeyri til að mæta framangreindum gjaldeyriskaupum næsta kastið. Nemur veikingin gagnvart evru 2,6% og gagnvart Bandaríkjadollar 3,7%, en evran hefur veikst talsvert gagnvart dollaranum á tímabilinu. Enn er krónan þó u.þ.b. 8% sterkari gagnvart báðum þessum myntum en raunin var í upphafi ársins. Það gæti orðið að brattann að sækja fyrir krónuna vegna þessa næstu daga, en við eigum þó von á að hún braggist að nýju þegar frá líður og árstíðabundið gjaldeyrisinnflæði nær sumarhámarki sínu.“
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent