Viðskipti innlent

Reiknar með gjaldeyriskaupum Seðlabankans á næstunni

Greining Arion banka reiknar með því að á næstunni, eða fyrr eða síðar, taki Seðlabanki Íslands aftur til við að kaupa gjaldeyri á millibankamarkaði til að styrkja óskuldsettann gjaldeyrisforða sinn. Raunar furðar greiningin sig á því að Seðlabankinn sé ekki þegar farinn að kaupa gjaldeyri á ný.

Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að erfitt sé að finna rök sem styðja þá ákvörðun að aðhafast ekkert og leyfa krónunni að styrkjast enn frekar. Í inngangi Seðlabankastjóra að síðasta Fjármálastöðugleikariti bankans kom t.a.m. fram að miðað við óbreytt gengi myndi fyrirsjáanlegur undirliggjandi viðskiptaafgangur næstu ára ekki nægja til að fjármagna samningsbundnar afborganir erlendra lána.

“Með inngripum á kauphlið væri hægt að draga úr styrkingunni, slá þannig á vöxt í innflutningi og auka afgang af utanríkisviðskiptum, samhliða því að safna gjaldeyri. Allt bendir því til þess að fyrr en síðar muni Seðlabankinn tilkynna um regluleg gjaldeyriskaup á nýjan leik eða sambærileg inngrip til að styrkja óskuldsettan gjaldeyrisforða bankans,” segir í Markaðspunktunum.

“Við teljum að í þeim styrkingarfasa sem staðið hefur yfir nánast samfellt frá lokum febrúar síðastliðins hafi falist talsvert svigrúm til gjaldeyriskaupa sem hefði gert Seðlabankanum kleift að endurheimta þann gjaldeyri sem hann hefur varið til stuðnings krónunni frá áramótum. Alls hefur bankinn selt um 78 milljónum evra á gjaldeyrismarkaði síðan þá, að meðtöldum framvirkum samningum, en hann þarf auk þess að standa skil á vaxtagreiðslum að andvirði um 22 milljörðum kr. vegna forðans á næstu 12 mánuðum.

Síðasta sumar, nánar tiltekið í lok júlí þegar krónan var upp á sitt sterkasta, brást bankinn einmitt við styrkingarfasanum með því að auka regluleg kaup sín úr 1,5 milljónum evra í 3 milljónir evra vikulega."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×