Mikil aukning á sölu farsíma milli ára 15. maí 2013 08:16
Helsta breyting í smásöluverslun í apríl var aukning í sölu á farsímum og tölvum, líkt og verið hefur síðustu mánuði. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs var velta í sölu farsíma 38% meiri en á sama tímabili í fyrra að raunvirði og sala á tölvum og jaðarbúnaði jókst á þessum tíma um 29%. Það sem af er þessu ári hefur minni vöxtur verið í sölu á öðrum raftækjum eins og sjónvörpum og hljómflutningstækjum. Þetta kemur fram í yfirliti frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að sala á mat og drykkjarvöru var sambærileg við söluna í sama mánuði í fyrra þegar leiðrétt hefur verið fyrir áhrifum páskanna sem voru í apríl í fyrra en í mars á þessu ári. Litlar breytingar eru sömuleiðis í sérvöruverslunum eins og fataverslun og húsgagnaverslun þegar horft er yfir síðustu fjóra mánuði. Fataverslun hefur aukist að raunvirði um 1,8% og húsgagnaverslun um 2,2% á þessum tíma miðað við sömu mánuði í fyrra. Almennt eru ekki miklar breytingar í kaupmætti og neyslu. Þannig var kaupmáttur launa í mars 1,5% meiri en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Nýjasta þjóðhagsspá Hagstofunnar gerir ráð fyrir 2,5% vexti í einkaneyslu á þessu ári. Fram kemur í tölum Seðlabankans að greiðslukortavelta heimilanna var 5,5% meiri í apríl en í sama mánuði í fyrra. Hins vegar var erlend greiðslukortavelta hér á landi í apríl 18,4% meiri en fyrir ári síðan, eða liðlega 5,2 milljarðar króna. Þannig var velta greiðslukorta erlendra ferðamanna um 9% þeirrar upphæðar sem heimili landsins greiddu með kortum sínum í síðasta mánuði.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira