Tölvukerfið Orri er í lagi, mælt með frekari notkun 16. maí 2013 10:38
Orri, fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins, mætir þörfum stjórnvalda og stjórnsýslu og virkni þess uppfyllir kröfur ríkisins í meginatriðum. Ekkert bendir til að betri útkoma hefði fengist fyrir ríkið með því að nýta aðra lausn en þá sem varð fyrir valinu fyrir tólf árum síðan. Greint er frá þessu á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar segir að þetta sé meginniðurstaða óháðrar, erlendrar sérfræðiúttektar á Orra, fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins. Kostnaður kerfisins er innan eðlilegra marka og ávinningur af kerfinu getur réttlætt kostnaðinn. Kerfið hafi skapað verulegt virði fyrir ríkið og stofnanir þess. Mælt er með því að kerfið verði notað áfram, en skerpt á stefnumiðaðri stjórnun, ábyrgð og eignarhaldi kerfishluta Orra. Farið verði reglubundið yfir notkun kerfisins og þróunarmöguleika. Til lengri tíma þurfi einnig að vinna að stefnumótun um upplýsingavinnslu ríkisins. Jafnframt er lagt til að miðlæg þjónusta við ríkisstofnanir verði efld. Fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins er bakvinnslukerfi sem hefur verið í notkun í rúman áratug. Árið 2001 var ákveðið að ganga til samninga við Skýrr hf. um kaup og innleiðingu á Oracle eBusiness Suite fyrir ríkissjóð og stofnanir í A hluta. Orri leysti af hólmi fjölda eldri fjárhags- og launakerfa ríkisins, auk eldri hliðarkerfa. Helstu kerfishlutar Orra auk fjárhagskerfis eru mannauðskerfi, innkaupakerfi og verkbókhald. Fjársýsla ríkisins hefur umsjón með rekstri kerfisins. Í kjölfar umræðu um fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins á haustmánuðum 2012, ákvað fjármála- og efnahagsráðuneytið að láta gera óháða úttekt á kerfinu.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Sjá meira