ÍLS hefur ráðstafað tæplega 2.000 íbúðum í sinni eigu 17. maí 2013 08:03
Af þeim 2.416 íbúðum sem eru í eigu Íbúðalánasjóðs hefur 1.984 þeirra verið ráðstafað í útleigu, sölumeðferð eða annað. Þá bíða 432 íbúðir frekari greiningar en margar þeirra eru á svæðum þar sem nokkurt offramboð er af eignum til sölu og/eða leigu. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir apríl. Þar segir að íbúðum í eigu sjóðsins hafi fjölgað um 39 í mánuðinum. Af þessum rúmlega 2.400 íbúðum eru 1.047 íbúðir í leigu um land allt. Í sölumeðferð eru 860 íbúðir, annað hvort komnar í sölu eða unnið er að söluskráningu þeirra. Þá voru 285 íbúðir óíbúðarhæfar og eru þær flestar á byggingarstigi og því ekki fullbúnar en nokkur hluti þeirra er óíbúðarhæfur vegna aldurs og ástands. Frá síðustu áramótun og til aprílloka hefur Íbúðalánasjóður selt 88 eignir, en þá voru 72 eignir með samþykkt kauptilboð. Á sama tíma í fyrra seldi sjóðurinn 38 eignir og hefur hann selt 663 eignir frá ársbyrjun 2008. Sem fyrr segir eru 1.047 íbúðir í útleigu. Langflestar þeirra eru leigðar til fjölskyldna og einstaklinga sem dvöldu í eignunum þegar Íbúðalánasjóður eignaðist þær. Sjóðurinn hefur einnig heimild til að leigja út eignir í almennri útleigu á þeim svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði. Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í apríl námu 703 milljónum króna en þar af voru um 699 milljónir króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í apríl 2012 um 700 milljónum króna. Þetta er í fyrsta sinn í nær tvö ár þar sem útlánaupphæðin minnkar ekki töluvert milli ára. Vanskil minnka áfram hjá sjóðnum en alls voru 9,1% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok apríl. Skýrslan í heild er hér.
Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira