Viðskipti innlent

Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um 9% í apríl

Í apríl flutti Icelandair 148 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 9% fleiri en í apríl á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 20% og sætanýting var 76,2% samanborið við 81,3% á sama tíma í fyrra.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar segir einnig að farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 25 þúsund í apríl og fækkar um 5% á milli ára. Framboð félagsins í apríl var dregið saman um 10% samanborið við apríl 2012. Sætanýting nam 69,3% og jókst um 3,3 prósentustig á milli ára.

Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 5% frá því á síðasta ári.

Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 16% miðað við apríl á síðasta ári. Herbergjanýting var 66,9% samanborið við 66,8% í apríl í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×