Kínverjar vilja kaupa jörð í Reykjadal 8. maí 2013 09:46 Myndin er á vefsíðu Akureyri vikublað.
Kínverjar leita nú leiða til að fá áratuga aðgang að jörð í Reykjadal vegna norðurljósarannsókna. Til skoðunar er að stofnað verði félag um málið með Arctic Portal, Eyþingi og Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga. Þetta kemur fram á vefsíðu blaðsins Akureyri vikublað. Um er að ræða opinbera rannsóknarstofnun eða stofnanir í Kína sem hafa áhuga á jörðinni. Á vefsíðunni segir að ef af stofnun félagsins verður myndi það kaupa jörðina Kárhól í Reykjadal og leigja hana Kínverjum til langs tíma ekki ósvipað og á Grímsstöðum á Fjöllum. Eftir því sem heimildir blaðsins herma vilja Kínverjar njóta aðgangs að jörðinni að lágmarki 33 ár. Kárhóll var auglýstur til sölu á dögunum en er ekki á söluskrá sem stendur. Heimamenn eru missáttir með framtíðaráformin, m.a. vegna þess að Kínverjar hyggjast byggja upp fjölda húsa auk þeirra sem fyrir eru. Hermt er að þeir hyggist stunda fleiri rannsóknir en bara norðurljósarannsóknir. Samkvæmt heimildum blaðsins vilja Kínverjarnir hefja starfsemi strax í haust. Þeir vilja keyra málið í gegn. Stjórnvöld, ekki síst utanríkisráðuneytið, hafa krafist meiri upplýsinga og hafa spyrnt við fótum samkvæmt heimildum blaðsins. Sjá má fréttina hér.
Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira