Ekki nægilegt vatnsmagn til að framleiða orku Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. maí 2013 16:33 Hálslón. Mynd/ Pjetur.
Landsvirkjun hefur óskað eftir því við Alcoa Fjarðarál að tímabundið verði dregið úr orkunotkun. Ástæðan er sú að óvenjulegt veðurfar í vetur hefur leitt til þess að staða í miðlunarlónum Landsvirkjunar á norður og austurlandi er verri en spár gerðu ráð fyrir í upphafi vetrar. Veðurspár gera ráð fyrir einhverjum hlýindum á hálendinu um helgina, en síðan er gert ráð fyrir kólnandi veðri og ekki útlit fyrir breytingu þar á fyrr en eftir miðjan mánuð. Vatnshæð Blöndulóns er nú 467,94 m.y.s. Það gerðist síðast árið 1999 og fór þá lónið lægst í 466,19 m.y.s. Vatnshæð Hálslóns er nú í 576,23 m.y.s en hefur áður lægst farið í 580,69 m.y.s. en það var 13. maí árið 2009. Vatnshæð í Þórisvatni er nú í 565,85 m.y.s, eftir því sem fram kemur á vef Landsvirkjunar. Þar segir að leita þurfi allt til ársins 1999 til að finna lægri stöðu en þá fór vatnshæðin niður í 562,54 m.y.s. Af þessum sökum hefur Landsvirkjun dregið úr raforkuvinnslu í Blöndustöð og Fljótsdalsstöð eins og kostur er og þess í stað aukið vinnslu í aflstöðvum á vatnasviði Tungnaár og Þjórsár. Flutningskerfi Landsnets takmarkar hinsvegar verulega svigrúm til orkuflutnings milli landshluta. Slík takmörkun kemur illa niður á rekstri raforkukerfisins við núverandi aðstæður.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira