Þung greiðslubyrði erlendra lána ógnar stöðugleika á Íslandi 30. apríl 2013 09:15
Samspil uppgjöra búa gömlu bankanna, þungrar greiðslubyrði á erlendum skuldum á næstu árum og losunar fjármagnshafta er enn helsti áhættuþátturinn sem ógnar fjármálastöðugleika Íslands. Þetta kemur fram í inngangi Más Guðmundsson seðlabankastjóra í ritinu Fjármálastöðugleiki sem Seðlabankinn hefur birt á vefsíðu sinni. „Í sem stystu máli felst vandinn í því að miðað við óbreytt gengi nægir fyrirsjáanlegur undirliggjandi viðskiptaafgangur næstu ára ekki til að fjármagna samningsbundnar afborganir erlendra lána. Því mun íslenska þjóðarbúið ekki skapa nægan gjaldeyri að óbreyttu gengi krónunnar til að losa út krónueignir búa gömlu bankanna til erlendra kröfuhafa og það jafnvel þótt þær yrðu verðlagðar mjög lágt í erlendum gjaldmiðlum," segir Már. "Á árunum 2014-2017 er áætlað að afborganir innlendra aðila annarra en ríkissjóðs og Seðlabankans af erlendum lánum muni á hverju ári nema að meðaltali um 5½% af landsframleiðslu. Til samanburðar má geta þess að undirliggjandi viðskiptaafgangur, þ.e. það sem í raun var til ráðstöfunar af tekjum þjóðarinnar til að greiða niður erlend lán, nam rétt liðlega 3% af landsframleiðslu á síðasta ári. Vandinn gæti aukist við það, að óbreyttu, að horfur eru á því að þessi afgangur fari minnkandi á næstu árum þar sem þjóðhagslegur sparnaður nær ekki að halda í við aukna fjárfestingu. Aukinn útflutningur og þjóðhagslegur sparnaður kæmi því að góðum notum til að stuðla að meiri viðskiptaafgangi. En ólíklegt að það dugi til og því ljóst að koma þarf til endurfjármögnunar á þessum skuldum ef forðast á umtalsverðan þrýsting á gengi krónunnar. Hún fæli í sér að skuldirnar yrðu greiddar niður á lengri tíma, annaðhvort með samningum við núverandi kröfuhafa eða með nýjum og lengri lánum. Að sama skapi liggur ljóst fyrir að gjaldeyrir til að losa úr landi krónueignir gömlu bankanna og núverandi kvikar krónueignir erlendra aðila getur ekki komið af gjaldeyristekjum þjóðarinnar og krefst því annars gjaldeyrisinnstreymis. Hröð losun þessara eigna, t.d. í tengslum við nauðasamninga, getur þannig ekki átt sér stað nema verðlagning og viðskiptagengi krónu gagnvart erlendum gjaldmiðlum feli í sér verulega lækkun frá mælingu þessara eigna nú í erlendum gjaldmiðlum miðað við bókfært verð þeirra og álandsgengi krónunnar. Takist vel til varðandi þetta gæti eftirleikurinn við losun fjármagnshafta orðið mun auðveldari fyrir vikið."
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Fleiri fréttir Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Sjá meira