Viðskipti innlent

Útlánaáhætta Íbúðalánasjóðs hefur aukist verulega

Útlánaáhætta Íbúðalánasjóðs hefur aukist verulega frá falli fjármálakerfisins árið 2008. Í lok mars 2013 námu vanskil einstaklinga 13,2% og vanskil lögaðila 22,8%,5 en vanskil hjá sjóðnum voru innan við 2% í ársbyrjun 2008.

Þetta kemur fram í ritinu Fjármálastöðugleiki sem birt hefur verið á vefsíðu Seðlabankans. Þar segir að fjárhæð lána til einstaklinga í vanskilum og frystingu nam 88 milljörðum kr. í lok mars og til lögaðila 34 milljörðum kr. eða alls 122 milljörðum kr.

Vanskil einstaklinga hafa þó dregist saman frá því í júlí 2012 þegar þau voru mest 14,5%. Vanskil lögaðila hafa hins vegar verið svipuð síðustu misseri. Í árslok 2012 nam fjárhæð veðsetningar sem var yfir 100% af fasteignamati um 47 milljörðum kr. en var 63 milljarðar kr. í árslok 2011. Staða veðtrygginga hefur því lagast með hækkandi fasteignaverði, þó má nefna að á varúðarreikningi eru 23 milljarðar kr. sem er rétt um helmingur þeirrar fjárhæðar sem er yfir 100% fasteignamati.

Í lok mars 2013 átti sjóðurinn 2.377 fullnustueignir metnar á rúma 30 milljarða kr., en þær voru 1.606 í lok árs 2011 og 1.069 í lok árs 2010. Frá upphafi árs 2008, þ.e. á rúmlega fimm árum hefur sjóðurinn selt 611 eignir.

Af þessum 2.377 íbúðum sem sjóðurinn átti í lok október sl. var aðeins rúmlega fimmtungur á höfuðborgarsvæðinu. Um þriðjungur íbúða er á Suðurnesjum og því tæplega helmingur íbúða annars staðar á landinu.

Íbúðalánasjóður mun þurfa að taka yfir fleiri eignir næstu misserin. Í lok mars sl. var 981 íbúð í leigu og duga leigutekjur aðeins til að greiða rekstrarkostnað fullnustueignanna, þ.e. leigutekjur nýtast ekki á móti fjármögnunarkostnaði þessara eigna. Yfirtaka sjóðsins á fullnustueignum hefur því verulega neikvæð áhrif á framtíðarrekstur sjóðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×