Vanskilum á útlánum heimilanna fækkar áfram 30. apríl 2013 10:43
Hlutfall útlána heimilanna í vanskilum heldur áfram að lækka en á móti hefur vanskilum einstaklinga fjölgað. Þetta kemur fram í ritinu Fjármálastöðugleiki sem birt hefur verið á vefsíðu Seðlabankans. Þar segir að í lok febrúar voru um 14% af heildarútlánum þriggja stærstu viðskiptabankanna og Íbúðalánasjóðs til heimila í vanskilum m.v. bókfært virði þegar öll lán viðskiptavinar teljast í vanskilum ef eitt lán er komið í vanskil. Hlutfallið var 18% í árslok 2011 og 20% í desember 2010. Miðað við þetta var bókfærð fjárhæð lána í vanskilum 172 milljarðar kr. í lok febrúar sl., en var 206 milljarðar kr. 12 mánuðum áður. Það hefur því náðst árangur í lækkun vanskila. Minni vanskil í lok febrúar s.l. samanborið við árslok 2010 stafa af því að hlutfall útlána í frystingu lækkar á umræddu tímabili úr 6% í 1% og hlutfall lána í fullnustumeðferð eða innheimtuferli lækkar úr 9% í um 7%. Á móti hækka aðrar vanefndir úr 4% í 5%, en hlutfall lána í endurskipulagningarferli er það sama og í árslok 2010 eða 1%. Ein birtingarmynd þess að hlutfall útlána í fullnustumeðferð eða innheimtuferli hefur lækkað er aukning í nauðungarsölum, en t.d. var fjölgun á nauðungarsölum íbúðarhúsnæðis, árið 2011 voru þær 485 en 773 árið 2012. Mikil lækkun á hlutfalli lána í frystingu er jákvæð þróun þar sem þessi lán eru í bið eftir frekari úrvinnslu. Lánafyrirtæki miðuðu á síðasta ári við að endurskipulagningu útlána einstaklinga yrði lokið fyrir síðustu áramót. Til dæmis féll greiðsluerfiðleikaúrræðið sértæk skuldaaðlögun niður um síðustu áramót. Líklegt er að endurskipulagning á útlánum heimilanna haldi þó enn áfram þar sem bókfært virði lána í vanskilum nemur enn rúmlega 170 milljörðum kr. Um mitt síðasta ár leit út fyrir að fjöldi einstaklinga á vanskilaskrá væri að ná jafnvægi, en frá febrúar til ágúst var fjöldi á vanskilaskrá að jafnaði um 26.500 einstaklingar eða um 11% einstaklinga yfir 18 ára aldri. Með haustinu fór einstaklingum á vanskilaskrá hins vegar aftur að fjölga og hefur mánaðarleg fjölgun verið svipuð og á tímabilinu frá miðju ári 2011 og til febrúar 2012. Í lok febrúar 2013 voru einstaklingar á vanskilaskrá 27.423 talsins.
Mest lesið Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Sjá meira