Gera athugasemd við ákvörðun ESA Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. apríl 2013 17:05 Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. Mynd/ Vilhelm.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur gert athugasemdir við þá ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, að hefja formlega rannsókn á framkvæmd laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi. Ráðuneytið segir í tilkynningu að lögin hafi verið sett árið 2010 og öðlast gildi eftir yfirferð og samþykkt ESA um að kerfið væri í samræmi við reglur EES samningsins. Síðan þá hafi verið gerð ein breyting á reglugerð sem hafi ekki haft í för með sér efnislegar breytingar á hinu samþykkta kerfi. Þá hafi verið samþykkt á Alþingi í mars síðastliðnum breyting á lögunum sem ekki hafi enn komið til framkvæmda þar sem hún sé háð samþykki ESA og hafi verið til meðferðar hjá stofnuninni undanfarna mánuði. „Frá gildistöku laganna 2010 hafa verið undirritaðir sex fjárfestingarsamningar og hafa þeir allir verið birtir opinberlega. Að baki þeim öllum liggur mikil vinna og fullur vilji yfirvalda til að standa rétt að öllum form- og efnisatriðum í samræmi við ákvörðun ESA frá 2010 þegar kerfið var samþykkt. Ráðuneytið hefur í dag sent ESA ítarlega greinargerð þar sem farið er yfir forsendur á bak við hvern og einn fjárfestingarsamning ásamt rökstuðningi um að rétt hafi verið staðið að gerð þeirra. Ráðuneytið er bjartsýnt á að rannsókn ESA leiði það í ljós og vonar að rannsóknin taki sem skemmstan tíma, þ.a. allri óvissu verði eytt,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þá segir ráðuneytið að áhrif þessarar ákvörðunar ESA sé sú að á meðan á rannsókn standi þurfi fyrirfram samþykki ESA áður en nýr fjárfestingarsamningur sem gerður er á grundvelli ívilnanalaganna tekur gildi.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent