Viðskipti innlent

Veltan yfir 4 milljarðar á fasteignamarkaði borgarinnar

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 118. Þar af voru 87 samningar um eignir í fjölbýli, 26 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var tæplega 4,2 milljarðar króna og meðalupphæð á samning 35,5 milljónir króna, að því er segir á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.

Fjöldi samninga er nokkuð yfir vikumeðaltalinu síðustu þrjá mánuði og veltan sömuleiðis. Fjöldi samninga hefur verið 107 á viku og veltan hefur hefur verið um 3,6 milljarðar króna að meðaltali á viku undanfarna þrjá mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×