Viðskipti innlent

Kaupmáttur launa jókst um 1,1% í mars

Vísitala kaupmáttar launa í mars er 113,7 stig og hækkaði um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,5%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir einnig að launavísitala í mars 2013 er 455,3 stig og hækkaði um 1,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,5%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×